Vissi reyndar af gourmet matseðli feðganna, það er venjan þegar skroppið er af bæ að þá er töfrað fram allt það flottasta sem til er og allt látið marinerast og hvaðeina, þá er víst enginn til þess að skipa fyrir, nöldra eða önnur álíka vitleysa!
Það var nefnilega "smá" breyting þegar heim var komið sem hentaði einstaklega vel fyrir kertakrúsirnar tvær sem keyptar voru með frænks í fallegri búð á Skaganum sem og að lúkka bara svo dásamlega vel...
Svo passar nýja hvíta "ráðhúsið" sem fannst í Grænu systrunum þarna vel líka..
Er enginn að fatta????
Minntist á kertaarinn fyrir tveimur póstum síðan ca...
VOILA - þessi beið þegar heim var komið...s.s. bóndinn er snillingur, það verður ekki af honum tekið því þetta smíðaði hann og græjaði svona rétt yfir helgina! :)
Verður nú ekki lítið gaman að skreyta þennan og hengja kannski bara upp jólasokka og svona eins og í amerískunni;)
Finnst hann alveg dásamlega flottur, heimatilbúin og hannaður af herra snilling.
Knús og góða nótt allir...Austfjarðapúkar:)
ferlega er þetta flott!!
ReplyDeletekveðja frá hinni frænkunni á Skaganum :)
Þetta er svakalega flott, ekki hefði mér dottið í hug að þetta væri heimatilbúið -amk ekki af myndunum að dæma :)
ReplyDeleteKv. Tinna Hrönn