Sunday, June 7, 2015

Að vakna í Ubud

 
Að vakna í Ubud á Bali í fyrsta skipti er mögnuð upplifun. Ekki eingöngu að upplifa nýtt umhverfi heldur einnig hljóðin, morgunhljóðin! Þau eru dásamleg samblanda af fuglasöng og alls kyns "verum" sem hljóma spennandi og framandi en er eflaust ágætt að þurfa ekki að horfast ekki í augu við ;) Í Ubud tekur einnig á móti manni alla daga ilmur af reykelsi og svo er bara einhver yfirnáttúruleg stemmning á þessum stað. Balibúar eru hindútrúar. Færðar eru fórnir á morgnana og maður upplifir það sterkt að virðing fyrir heimili og litlu hlutunum er í hávegum höfð.
 
Trúið mér. Þetta er ekki klisja um sérstaka stemmingu til að lokka fólk til að heimsækja viðkomandi áfangastað. Ég hef aldrei nokkru sinni á mínum ferðalögum upplifað þessa tilfinningu áður. Bali er bara í einu orði sagt dulmögnuð eyja sem ekki dugar að heimsækja einu sinni!
 
Ég dvaldi á Honeymoon Guesthouse í Ubud og hér má sjá einkasvalirnar mínar sem voru samliggjandi í næstu íbúð þar sem dásemlegir ferðafélagar dvöldu einnig :)
 
 
Fallegi jógasalurinn okkar en þarna byrjuðum við alla morgna kl. 06:00!!! Elskurnar mínar. Að vakna hinum megin á hnettinum, í nýju umhverfi, með konum sem ég var að hitta í fyrsta skipti og mæta í jóga og hugleiðslu þegar sólin var að koma upp...bíðið aðeins...leyf mér hugsa...það var dásamlegt:) Við vorum þreyttar og þetta var erfiðara suma morgna en aðra en yfir þá upplifun verður aldrei annað orð í huga en þakklæti - þakklæti - þakklæti. 

 
 
 
Framhald næstu daga þar sem frúin tók hátt á þriðja þúsund ljósmynda á síma og myndavélina dásamlegu. Við þurfum því smá skipulag svo sagan og myndirnar fari ekki öll úr böndunum :)
 

Thursday, June 4, 2015

Tímamót

Næsti Bali póstur kemur inn um helgina.

Einkasonurinn hann Junior er nefnilega að útskrifast úr grunnskóla í kvöld og ýmislegt sem fylgir því.

Það er ótrúleg lukka að fá tækifæri til að fylgjast með afkvæminu vaxa, dafna og þroskast. Það er eins og allt annað í þessu lífi, ekki sjálfgefið að geta fylgt þeim áfram og séð þau blómstra.


Verið þakklát fyrir þessi augnablik, fyrir litlu hlutina, fyrir hvern dag sem þið hafið hér í þessari tilveru og fyrir að hafa ástvini ykkar hjá ykkur. Ekkert varir að eilífu og notið því tímann vel sem ykkur er gefinn. Ekki fresta því sem þið getið gert eða sagt í dag.

Með knúskveðjum...Sjáumst svo í Ubud um næstu helgi :)