Monday, March 25, 2013

Sýnishorn II

Hóst, kvef, ennisholukinnbeinaojoj og almennt heilsuleysi...allt að koma..ekki annað í boði enda gestir væntanlegir...á morgun takk fyrir kærlega!

 
 
Smáá...fermingarskreytingaforskot..
 
 
 

 
 

Sunday, March 24, 2013

Sýnishorn

Eins og þið vitið þá er mikið að gera á stóru heimili - húsið er stórt þó íbúarnir séu nú ekki svo margir og bloggið alveg útundan núna.

Eeennn svona inn á milli framkvæmda, fermingarstúss og aumingjaveikinda hjá frúnni þá er nú alveg hægt að smella af nokkrum símamyndum og skella hér inn.
 
 
 
 
Skilti úr Sirku sem á eftir að finna samastað.
 
 
 
 
Smá hjartarammabling úr Pier, vantar bara krúttlega mynd í hjartað.
 


Neðri hæðin er öll að fíniserast...hreindýrabrúni er komin á veggina á móti hvítu og flísar komnar á gólf...hvað á svo að gera við allt rýmið þarna niðri, það á eftir að koma í ljós...bóndi og Junior vilja poolborð..hmmm;)



Útsýnið úr eldhúsglugganum á Southfork er ekki slæmt.

 
Takk fyrir að kíkja við:)
 
 

Saturday, March 16, 2013

Bráðum koma páskar

en fyrst ferming!

Tæpar 2 vikur í herlegheitin og því enginn tími fyrir blogg, verður eitthvað lítið um það næstu daga, en aldrei að vita nema andinn komi yfir frúnna.

Framkvæmdir í gangi á fullu, nú er búið að fjárfesta í málningu fyrir neðri hæðina, útidyrahurðin og svalahurð eru ekki lengur brúnar og loftlistar komnir í eldhúsið líka!

Baðherbergi klárt og heimaoffice að taka á sig mynd...alltof mikið í gangi á sama tíma og svo alveg snar á Office eins og venjulega - en manni leiðist ekki á meðan;)

Aðeins byrjuð að páskaskreyra í eldhúsinu...

 
 


Eigið góða helgi - hér á bæ er árshátíð á dagskrá kvöldsins, aldrei friður:)

Saturday, March 9, 2013

Alls konar í gangi..

Bloggleysi er ekki sama og framkvæmdaleysi - aldeilis ekki! Þvert á móti verið nóg að gera og hápunktur síðustu viku var módelhlutverk frúarinnar á skemmtikvöldi hjá flottustu hárstofunni á Reyðarfirði, alveg óskaplega gaman að vera með rauðbleikt hár og grænþemaða förðun, í fatnaði frá Arfleifð og með skart frá Sign...víúvíú...bíð eftir að tilboðin streymi inn:)
 
Af Southfork framkvæmdum er þetta helst í fréttum:
 
fyrir-eftir, fyrir-eftir baðherbergið er orðið kalkgult á litinn, kemur bara vel út amk. að mati okkar íbúanna hér í Southfork. Fleiri myndir birtast þegar skreytingu er lokið, ljósauppsetning og sitthvað fleira:)
 

En það hefur ekki bara eitthvað verið baukað inni á baðherbergi sl. daga heldur verið smíðað og málað í því herbergi sem nú er formlega komið með vinnuheitið "Heima-skrifstofa" :)


Og svo aðeins föndrað til að setja línuna með litaval á heima-skrifstofuna góðu. Mögulega blátt þema í öllu sínu veldi, túrkis og allt þar á milli.

 
Bara aaaaðeins byrjuð að skreyta, það er svo miklu skemmtilegra en að þrífa allt sag og taka saman draslið eftir smíðavinnuna, hvað þá að kíkja niður í þvottahús, nei hættu nú alveg;)

 

Junior er á fótboltamóti á Akureyri í lánsskóm því auðvitað skildi hann skópokann með nýju..nota bene...nýju takkaskónum eftir heima! Farin akútferð og fjárfest í skóm því hinir eyðileggjast tveimur dögum fyrir mót! Svo blasti skópokinn við frúnni þegar hún kem heim af Office í gærkvöldi..fékk einhverjar pílur frá bóndanum að þetta væri "ofmæðrun" um að kenna, sjáum til hvort guttinn læri af þessu eður ei, virtist amk. ekki trufla hann mikið að vera skólaus;)

Hafið það gott um helgina - 3 vikur í ferminguna...úffúff...:)