Úbbs...er einhver búin að taka eftir því að púkasíðan hefur verið ansi óvirk? Vonandi þá er amk. einhver sem kíkir hér inn;)
Ástæðan er ca. þessi: Á 10 daga tímabili stóðu þessir viðburðir yfir í Southfork....Ferming einkasonarins með tilheyrandi undirbúningi og gestagangi, páskar með tilheyrandi gestagangi og svo til að toppa allt saman 14 ára afmæli fermingarjunior!
Multitasking er ofsalega fínt og flott orð og á við flestar konur sem frúin þekkir, vafalaust einhverja karla líka...en kæra púkasíðan hefur bara verið sett til hliðar því það var bara enginn orka eftir í rafstöðinni;)
Annað sem truflar aðeins núna en er þó mun meira spennandi....
Já mikið rétt, frúin er fara til Japans...eftir 9 daga takk fyrir kærlega! Elskuleg flökkumamma frúarinnar verður með vatnslitamyndalistarsýningu á Hoikkado eyju, rétt hjá Sapporo borg þar í landi. Litli bróðir frúarinnar býr auk þess í landinu með sinni gullfallegu konu og undirrituð fer með kellunni sem aðstoðarkona:)
Áhugamálin felast ekki bara í því að skreyta Southfork og mynda dauða hluti og raða og bjútígera umhverfið þó það sé svo gaman, heldur er flökku- og ferðaþráin búin að smitast frá mommy dearest yfir til dótturinnar sl. ár:)
Frúin fór með flökkumömmu sinni til London vorið 2010. Þá var ákveðið að stefna að því meðan heilsa og fjárhagur leyfir, að fara saman á 2 ára fresti eitthvert erlendis í nokkurra daga ferðir.
Haustið 2012 fóru kellurnar svo saman til Skotlands. Við eyddum 2 dögum í tíbesku búddamunkaklaustri, jábbs í Skotlandi, af öllum stöðum! Svo var haldið til Glasgow og gert það sem hefðbundinn ferðamaður ( ok margar/ir gera )...verslað og verslað... Með því að heimsækja þetta klaustur þá varð samt vinkillinn á ferðinni allt annar og svo miklu, miklu innihaldsríkari en bara að sjá H&M að innan amk. að mati undirritaðrar!
Frúin með einni af nunnunum ( ekki bara búddamunkar, þær bjuggu auðvitað á öðrum stað ). Fengum að hjálpa henni að kveikja á 104 kertum sem kveikt er á daglega í Butter Lamp Tree House.
Nota bene...frúin er ekki búddisti eða sérstaklega trúrækin, parturinn af þessari heimsókn var að gera eitthvað algjörlega öðruvísi og það tókst svo sannarlega:)
Ef þið hafið tök á...ferðist, kannið heiminn, sleppið aðeins tökunum á örygginu og því sem flokkast undir vana...við sjáum líklega mikla meira eftir því sem við gerðum aldrei en því sem við gerðum:)
Risaknús...Austfjarðapúkar á ferð og flugi:)