3. í aðventu...vika í jól og komin tími á einn fyrir-eftir póst.
Að þessu sinni er það tvöfalda herbergið sem fékk nýtt hlutverk sem sjónvarpsherbergi. Upprunalega hafa þetta verið tvö mjög lítil herbergi og svo verið opnað á milli. Miklar pælingar voru uppi um hvort ætti að halda þessu svona, með tilheyrandi "sári" í loftinu og gólfi og ráðast í að laga það með öllu tilheyrandi eða hafa tvö lítil herbergi sem rúma ekki mikið.
Lausnin var því að leyfa lofti og gólfi að vera óbreytt um sinn en skápurinn og hurðin í horninu sem sést á myndinni hér að neðan fóru í smá make over með dasssshh af málningu.
Herbergið var annars nýtt sem herbergi fyrir sög frændans á meðan eigendur hússins reyndu að ákveða hvernig þetta ætti nú eiginlega að vera.
Hér er búið að fjarlægja skápinn og hurðina og smella plötum yfir.
Þessi bjó áður á Álftanesinu hjá tengdó. Hafði hugsað að hvíttudúllugræja hann en held hann lúkki nú bara ágætlega inn í þetta rými eins og hann er, amk. í bili;)
Bóndinn smíðaði svo hillu þar sem fataskápurinn var áður.
Gamla leðursófasettið fær því að vera hér þar til fjárfest verður mögulega, kannski, einhvern tíma í góðum tv-hornsófa.
Einstaklega heppilegt að geta svo bara lokað hurðinni þegar yndislegu fótboltaleikirnir eru í imbakassanum og hljóðið aðeins í hærra laginu;)
En svona er tv herbergið okkar, ekkert mikið af væmnis dúllerí í þessu rými, vantar bara bjarnarfeld á gólfið eða dýrhaus á vegginn (bara gervi) þá er þetta orðið ágætlega bónda og juniorvætt.
Hafið það annars gott í jólaundirbúning...lítið stress á þessum bæ og enn ókeyptar jólagjafir, þetta kemur allt á endanum.
Knús í bili:)













Þetta er frábær breyting á herberginu, það verður gaman að sjá meira! :) Kv. Tinna Hrönn
ReplyDeleteÞori ekki að hugsa það til enda ef Zelda hefði ekki verið hvít :)
ReplyDeleteKv. Tengdapabbi