Friday, December 14, 2012
Helgarfrí...
Helgarfrí...loksins:)
Samt er það tilfinningin að það er einhvern veginn alltaf mánudagur eða föstudagur og eftir nokkra daga verða jól og örfáum dögum eftir það er komið nýtt ár, 2013...hvað á það eiginlega að þýða!
Tíminn líður ekki bara, hann flýgur svo óendanlega hratt að maður er ekki fyrr búin að snúa sér í hringi heldur en einhver ný árstíð er gengin í garð áður en maður áttar sig á.
Alls konar flott orðatiltæki til um tímann, varðveita það sem er dýrmætt og alls kyns falleg orð sem frúin "lækar" eða "repinnar" á Pinterest, en fer maður svo í raun eftir þessu...hm...það er spurning?
Það er eitthvað sem undirrituð þarf að tileinka sér, lifa í núinu, ekki því sem verður eða getur orðið, það kemur víst bara ef það á að koma...ekki satt, eða eitthvað svoleiðis;)
Mun amk. reyna að vera meðvituð um tímann um helgina og mögulega myndbirta eitt stk. tv room...það er svona ágætis mótsvar við hvíta-fjólubláa-dúlludótinu sem ekki allir heimilismenn gúddera en smekkur er mismunandi sem betur fer!
Hafið það gott um helgina hvort sem um frí eða vinnuhelgi er að ræða...knús Austfjarðapúkar:)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

No comments:
Post a Comment
Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.