Þegar við tókum við húsinu í júlí þá leit eldhúsið svona út, í sinni upprunalegu mynd nokkurn veginn frá árinu 1975.
Innrétting og skápar í fínu lagi. Með hvítri málningu, listum, nýjum höldum, 1000000 umferðum af svörtu lakki, nýju parketi og snilligáfu bóndans er útkoman svona.....
Sjónarvarpsskápurinn fékk nýtt hlutverk þar sem öll sjónvörp eru orðin flöt í dag og þurfa ekki lengur svona massíva skápa...hann geymir því "fína" stellið og skraut:)
Bóndinn smíðaði eldhúsborð og bekk. Eina sem vantar eru gardínur en annars bara ready og við erum ofsalega ánægð með útkomuna:)
Svo er búið að setja hvíta gólflista og hvíta lista í loftin eins og sést hér á myndinni að neðan. Ekki alveg búið en þið sjáið væntanlega lúkkið sem við erum með í gangi:)
Hér má svo sjá mynd af því hvernig gangurinn er farin að líta út, hann er reyndar lengri en dót í gangveginum sem er of fyrirferðamikið til þess að færa, truflaði svoleiðis myndatöku, kemur seinna:) Bóndinn var hér enn að verki, málaði allar hurðar hvítar, smíðaði lista utan um og svo var settur hreindýrabrúnn á veggina til þess að heiðra búsetuna hér fyrir austan, eða svona næstum því;)
Hvernig líst ykkur á????
Knús frá Austfjarðapúkunum:)
















