Monday, February 2, 2015

Skrapp í borgina

og var þar í heila fjóra daga :) Borgarbúinn ég sem er búsett á landsbyggðinni til næstum 7 ára verður reglulega að komast suður, það er bara svoleiðis.

Var á fullu eins og venjulega út og suður. En var róleg í innkaupum fyrir Southfork. Labbaði inn í Pier og Ilvu og kom út með ekki neitt og mjög þakklátt Visa kort :)

Keypti reyndar gardínustöng og gardínur í stofuna...hvítar, blúndulegar en veit ekki alveg hvort ég sé að fíla þær, þarf mögulega bara venjast. Skelli inn myndum og einhverju Southforktengdu síðar í vikunni.

Þangað til knús knús í kuldanum :)