Monday, December 3, 2012

Frunsa um frunsur og eitthvað annað

Ekkert jóló í þessum pósti enda myndirnar eflaust teknar áður en aðventuskreytingamanían fór á fullt seinnipart helgar. Bóndinn heldur að frúin sé orðin klikk, þetta er húsinu að kenna segir hún þá bara;)

Frúin er undirlögð af frunsu aka herpes simplex eða herpes labialis og heldur sig heima í dag sökum þess - nei við erum ekki að tala um eina litla sæta heldur ca. 7 manna fjölskyldu sem hefur tekið sér bólfestu á neðri vörinni og lítur út eins og illa misheppnuð bótoxaðgerð á vörum - sjáið þið þetta ekki fyrir ykkur?

Eins og margir sem frúna þekkja vita að hún er sjálfskipaður formaður frunsuvinafélags Íslands sökum ástandsins sem byrjaði í barnæsku og virðist ekki ætla að eldast af kellu. Enda er þetta lífseigt kvikindi, once you get it, it never never ever ever yfirgefur kerfið! Bíður í dvala eftir lélegu ónæmiskerfi s.s. vegna álags og þreytu, kulda og sól eða bara af því bara og búmm..fílamannslúkkið mætir á svæðið:( Laumaðist í apótekið áðan með klút fyrir andlitinu og náði í pillur. Virkar reyndar best að hefja mediferd áður en kvikindið mætir á svæðið en desperate times kalla á desperate aðgerðir.

Jæja nóg af frunsutali.

Þvílíkur lúxus að hafa ekkert á ganginum sem ekki á að vera þar, enginn stigi, engin sög, engir naglar á gólfum, málningardósir, tuskur og svo bara alls konar drasl. Reyndar á eftir að mála hvítu frauðlistana efst og þá mætir stiginn aftur en er á meðan er:)

Gangurinn okkar leit svona út í júlí fljótlega eftir að við yfirtókum Southfork


Svo byrjaði dótið að safnast saman í framkvæmdastússi


Var áður búin að birta mynd af hluta gangsins, nú er hins vegar allt draslið farið og hér kemur hann allur (já það er rússnesk ljósapera þarna eða hvað þetta kallast nú,
 þetta kemur)




Hér má svo sjá smá hálf fyrir og eftir af forstofuhurðinni og skápnum sem bóndinn smíðaði en ekki hvað..frúin setti bara sprinkle á veggina sem voru by the way málaðir af frúnni með lit sem frúin valdi, sprinkle hvað;)




Segi það enn og skrifa, við erum rosalega lukkuleg með "Pinterest" ganginn okkar sem bóndinn hannaði, verður að koma fram:)

Svo er forstofan líka komin í ágætis horf með málningu, gólflistum og Vesturtúnsflísum og auðvitað "nýrri" hurð:)




Minntist á mismunandi smekk frúar og bónda fyrir alls kyns dóti innanhúss. Þarf enginn að giska á hvernig smekk míns aðhyllist..gamaldags/sveita/franskur/sænskur/shabby chic/heimilislegur stíll. Bóndinn er meira svona algjör andstæða en lætur þetta yfir sig ganga. Hann sagði þó hingað og ekki lengra þegar frúin fjárfesti í þessu dásemdarskilti, sagðist ekki geta boðið fólki í heimsókn ef þetta ætti að hanga upp í stofu!

 
 
Það bíður því bara í rólegheitum eftir föstum dvalarstað en búið að gefa grænt ljós á að hafa það í eldhúsinu...sjáum til;)
 
 
Spurning hvort einhver hafi áhuga á smá tv room pósti á næstu dögum eða kannski að kíkja aðeins á baðherbergið?

Með frunsukveðjum úr rigningu og roki - knús frá Austfjarðapúkum..

No comments:

Post a Comment

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.