Frúin er stödd í höfuðborginni, fundir og fundir og svo búðir og búðir. Var svo dásamlega heppin að hafa uppáhalds frænksið til halds og traust í hinni stóru Kringlu í dag. Gekk svo vel að það eru ekki margar jólagjafir eftir og meira segja búin að pakka helming þeirra inn:)
Svo mikið af ótrúlega flottu dóti og dúllerí í öllum búðum, flest allt saman ekkert annað en óþarfi og eitthvað sem hægt er að lifa án...keypti samt bara pínu kertastkrautadótarí fyrir Southfork, bara pínu og er það allt fyrrnefndu frænksi að kenna;)
Ágætt og fyrir þessa frú,algjörlega nauðsynlegt að komast reglulega í borgina. Ef það er eitthvað sem enginn söknuður er yfir vegna búsetu hinummegin á landinu, þá er það hinsvegar umferðartraffíkin í borginni sem við tókum nú sjálf þátt í..get ekki annað en vorkennt ægilega öllu fólkinu sem þarf að keyra í þessu alla daga fyrir og eftir vinnu...minn akstur í vinnu (sem auðvitað er óþarfur en sumir eru bara latir) tekur ca. 2 mín max. Mesta hindrunin á leiðinni eru ekki umferðarljós eða aðrir bílar heldur stóra brekkan og ástandið á hálkunni, hefur nú gengið súper vel eftir að burri fékk fín nagladekk!
En svo er eflaust eitthvað fólk sem vorkennir okkur sem búum svona langt frá höfuðborginni líka ægilega mikið, þess vegna er nú gott að við erum ekki öll eins. Hætti samt seint að koma suður og enn, 4,5 ári eftir flutninga lengst austur á firði hafa aldrei liðið meira en 2 mánuðir á milli borgarferða, þá mæta fráhvörfin á svæðið;)
Fleiri montmyndapóstar af framkvæmdum og dúlluóþarfadóti birtast fljótlega eftir helgi...þangað til hafið það gott:)

No comments:
Post a Comment
Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.