Austfjarðapúkar komu aftur heim í gær eftir rúmlega vikudvöl í bænum. Við áttum góðan tíma með fólkinu okkar enda er það fjölskyldan og þau sem við höfum í kringum okkur sem skiptir mestu máli.
Mannskepnan er nú samt þannig úr garði gerð að aðrir hlutar skipta líka máli, mismiklu þó.
Hjá okkur þessa dagana og misserin virðist mest athyglin fá blessaði Southfork okkar eins og þetta blogg fjallar víst um að mestu! Verkefnin eru endalaus, bóndinn heldur áfram að smíða á meðan að frúin heldur áfram að skreyta, meira að segja er búið að útbúa aðventu"krans" (í næsta bloggi) og gera eldhúsið aðeins meira jóló, í nóvember takk fyrir pent! Hvað er eiginlega í gangi?
En frúna grunar að það frábæra fólk sem nennir að kíkja hér vilji nú frekar fá einhverjar myndir af framkvæmdum í stað endalaust skrifa-blaður í frúnni en það fylgir ef þið viljið myndir - spurning að skoða stofuna núna ef þið hafið áhuga?
Hér koma nokkrar myndir af því hvernig stofan var, meðan á málningarvinnu stóð og svona...
Þið takið kannski eftir því að loftin voru svona skemmtilega panel-viðar-sumarbúðstaðalega ljósbrún. Alls ekki ljótt svo enginn móðgist nú en með því að mála loftið hvítt þá bara varð þetta ennþá fínna;)
Hér var bóndinn byrjaður að mála loftið hvítt..
Tók ekki nema 4-5 umferðir til að bóndinn yrði sáttur
Svo málaði frúin tvo veggi í stofunni blágráa áður en farið var suður í langþráð sumarfrí
Stofan var kannski ekki svona alla daga, en nánast flesta. Gamla leðursófasettið fittaði bara ekki þarna inn og draumurinn var að útbúa tv-room sem nú er orðið að veruleika og verður birt fljótlega:)
Ætla því að kynna nýju stofuna fyrir ykkur þar sem blúndudúllusófasett konu frændans spilar aðalhlutverk...
Bóndinn málaði borðplötuna hvíta en restin brúnbæsuð eins og borðið var. Og komið smá jólajóla...alveg að missa það bara
Jólaklikk í nóvember, búin að taka út af bakkanum og bæta við..
Á heimilinu er enginn skenkur eða stór og fallegur glerskápur. Þannig að til þess að poppa aðeins upp vegginn fyrir aftan minni sófann var fjárfest í hillu og festingum úr Bauhaus (hugmynd bóndans, verður að koma fram..) Tilgangur hillunnar fyrst og fremst til að svala skraut- og kertaþörf frúarinnar múhaha...
Sá svona kertahús á bloggsíðu sem ég skoða alltof oft þessa dagana og varð agalega kát að finna þessi tvö í Fjarðarkaup;) Aðventuskreytingin er svo gjöf frá Birtu og pabba fyrir nokkrum árum..
Eru þau ekki sæt og fín?:)
Málverkið er svo að sjálfsögðu vatnslistamynd eftir flakkaramömmu frúarinnar
Svona er svo borðstofurýmið, myndir, hillur og annað skraut þarna kemur síðar, því eins og þið vitið krakkar mínir þá gerist ekki allt í einu. Sama gildir með aðrar gardínur í stofuna;)
Hvað segið þið - er stófan ekki bara þokkalega hugguleg svona? Spurning um að henda svo inn smá jólajóla því í eldhúsinu hanga litlir gluggar, sjáið glitta í þá þarna;)
Þangað til næst - knús frá Austfjarðapúkum :)