Jæja kæru Púkavinir. Hér kemur smá myndasyrpa frá framkvæmdum að utan í sumar. Við keyptum Southfork sumarið 2012. Við byrjuðum á framkvæmdum að innan og húsið látið eiga sig að utanverðu á meðan. Það er nefnilega ekki hægt að gera allt í einu og þetta kemur allt með tímanum.
Það sem amaði að húsinu að utanverðu við kaupin voru skemmd gler á mörgum stöðum ýmist full af móðu eða hreinlega brotin að hluta, fúið timbur og ónýtur múrinn sérstaklega að aftanverðu. Það var því að af nægu að taka.
Hér má sjá bóndann mæla fyrir gleri í gluggum í byrjun sumars, þarna var ennþá tiltölulega rólegt í framkvæmdum en það breyttist fljótt.
Hér má sjá eitt af mínum mörgum viðfangsefnum í sumar en það var timbur, nóg af því og það þurfti að mála það...margar, margar alveg óendanlega margar umferðir. Fyrst af fúavörn, svo grunni, svo málningu svo stundum einhverju yfir málninguna. Ég hætti að telja umferðirnar.
Ég fann engar myndir frá því bóndinn byrjaði að setja gula málningu á húsið en það var liturinn sem varð fyrir valinu. Gult hús með hvítum listum í kringum glugga :) Bóndinn byrjaði nefnilega að mála húsið á meðan Púkafrúin skrapp til Rómar á ráðstefnu. Ágætis verkskipting;)
Var ég búin að minnast á hversu dugleg ég var í málningarvinnunni? Svo dugleg að hanskar voru bara fyrir amatöra og það fylgdu þessu árverkar á hæsta stigi!
Búið að skemmileggja hurðina tímabundið.
"Við getum ekki haft svarta hurð með gulu og hvítu húsi" sagði bóndinn. Sem sérlegur smekkmaður í litavali þá fannst honum tilvalið að hafa útidyrahurðina plómufjólublá. Já lásuð þið rétt PLÓMUFJÓLUBLÁ útidyrahurð! Við keyrðum nokkra hringi hér um bæinn og komumst að því að með þessari aðgerð yrðum við alveg ofsalega öðruvísi með svona litríka útidyrahurð :)
Liturinn bara smellpassaði við fyrstu umferð.
Hér er komin smá mynd á Southfork. Enn átti eftir að skipta um þakkant, setja nýjar rennur, skipta um gler, nýtt handrið og stubbakalla á grindina og margt, margt fleira.
Nei sko...sjáið hvað ég málaði margar spýtur...alveg ofsalega dugleg!
Svona vorum við fín alla daga og öll kvöld stærstan part sumarsins og fram á haustið. Alltaf fjör hér á bæ.
Glerið komið. Búið að skipta um það gler sem þurfti á efri hæðinni, neðri hæðin eftir.
Nýtt grindverk á svalirnar, nýmálað og fúnar vonandi ekki næstu árin.
Þessi græja kallast skotbómulyftari að ég held. Þetta var leiktæki bóndans í sumar.
Southfork bakdyramegin. Þar á eftir að klára að múra og mála neðri hæðina. Verður gert þegar fer að vora.
Get alveg sagt ykkur að þetta var ekki uppáhaldsstarfsaðstaða bóndans, þetta er nefnilega lúmskt hátt. Ég prófaði græjuna og það eiga að leynast myndir því til staðfestingar einhvers staðar.
Þarna var einkasonurinn komin heim úr fótboltaútlegð sumarsins af Álftanesinu fagra hjá ömmu og afa. Var settur beinustu leið í að hjálpa pabba sínum við glerskipti og gekk svona ljómandi vel hjá þeim.
En Southfork fór að taka á sig betri mynd. Bjartara hús, nýtt gler, nýtt timbur, nýjar rennur, nýr þakkantur, fullt af nýrri málningu og ýmislegt annað.
Einu sinni var...
Okkur þykir þetta betra :)
Hvað segið þið kæru Púkavinir. Like á þetta?
Ég fékk svo mikið ofnæmi fyrir útimálningarhúsavinnu að það hafa ekki verið teknar myndir að utanverðu síðan síðla hausts. Spurning að bæta úr því. Southfork er ekki tilbúið að utan. Stærsta verkefnið er neðri hæðin bakvið hús þar sem bíður eftir nýjum múr og málningu. Hráefnið bíður niðri í skúr þar til viðrar til þess. Þangað til eru hér næg verkefni innanhúss og af mörgu að taka.
Takk fyrir innlitið kæru Púkavinir :)