Síðasti póstur ársins 2012:)
2013 að detta inn í hús eftir nokkrar klukkustundir sem óskrifað blað, ný byrjun.
Frúin hefur haft þann háttinn á að lista upp helstu viðburði þess árs sem er að líða og jafnvel punkta niður markmið og það sem er vitað að verður líklega efst á baugi á nýju ári. Þessi upplistun er gerð í gamaldags dagbókarskrifum með penna og pappír, ekki á tölvu;) Svo margt sem gerist alla daga, hvað þá á einu ári og ágætt að hafa smá yfirsýn yfir allt það hversdagslegt eður ei, sem gerist.
Ekki hægt að segja annað en að húsakaup okkar hjónaleysa á Southfork hafi nú verið með stærri og merkilegri viðburðum hjá okkur á árinu. Í kjölfar þess fékk þessi Púkasíða líka nýtt útlit, nýja staðsetningu og nýtt líf. Frúnni finnst ofsalega gaman að sjá að daglega kíkja alltaf einhver yndi hér inn, það er ekkert annað en hvatning til þess að halda áfram að skrifa, setja inn myndir og hvað eina sem kemur í kollinn hverju sinni.
Eitt markmið verður þó sett, hvort það næst kemur í ljós...Að finna myndavélina!;)
Slútta þessu með nokkrum myndum af áramótaborðinu 2012, pavlovu in the making og smá náttúru frá Reyðarfirði - afsaka myndgæðin, þó "símamyndavélin" sé flott;)
Knús til ykkar allra með óskir um frábært og gleðilegt nýtt ár - sjáumst á næsta ári.
Austfjarðapúkar.













No comments:
Post a Comment
Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.