Tuesday, August 21, 2012

Atttssjúúú...


Hiti, hálsbólga og kvef.is í mesta veldi er afleiðing fjallgöngu og ræktarskopps eða svona næstum því;)

Lagðist í rúmið hundveik eftir Esjugöngu og nú viku síðar komin á sýklalyf þar sem ennisholusýkingareitthvaðdót er mætt á svæðið. Búin að ganga ansi langt á wcpappírsbirgðar Vesturtúns og fleiri staða undanfarna daga. Yndislega skemmtilegt í orlofi.

Orlofstíma í borginni að ljúka og flogið austur í fyrramálið. Esjan, Menningarnótt, Laugarvatn, Stubbó og allar búðaferðirnar og fótboltastússið...tékk, tékk, tékk... Þá er bara hrista af sér kvefið og ógeðið og hefjast handa við að taka upp úr kössum og vinna í húsinu fram að næsta orlofi sem hefst 6. september með Skotlandsför...eins gott að græna slímið verði farið þá ojoj...:)

Bless í bili.

Wednesday, August 15, 2012

Esjan og ræktin


Í dag fórum við Junior upp á Esjuna já takk fyrir kærlega! Ekki alveg á toppinn en alveg nógu langt (3 tímar ) til að fá næstum blöðrur á fætur og fjólublátt andlit! Ótrúlega dugleg bæði tvö en fannst leiðin þó heldur brattari en blessað Stöðvarskarðið og það voru 6 tímar! Svaðalega hlýtt úti í dag og sluppum við rigningu og alles, smá þoka efst uppi. Esjan var á bucket listanum, aldrei farið og get núna strikað það út:)

Í gær var svo skoppast í tíma í Hress. Eins gott að hafa smá hreyfingu með öllu gotteríinu sem maður borðar í sumarfríi;)

Stefnan er tekin aftur á Laugarvatn í 1-2 nætur þar sem veðurspáin er góð, rigndi heldur mikið um síðustu helgi. 2 leikir eftir hjá Junior í Íslandsmóti og svo Stubbakot á mánudaginn með mömmu.

Best að láta staðar numið núna svo tengdó klári nú ekki allar lakkríssprengjurnar - bless í bili:)




Monday, August 13, 2012

Hálfnuð..

Jæja - þá er sumarfrí frúarinnar hálfnað. Tvær vikur eftir sem skiptast nokkuð bróðurlega á milli höfuðborgarsvæðisins og Austurlandsins.

Helginni var eytt að  mestum hluta í grenjandi rigningu á Laugarvatni. Frúin gat þó klárað nýjustu bókina, Hunger games og þarf víst að fjárfesta í framhaldinu til að lesa meira. Dagarnir þar á undan fóru m.a. í að þræða allar hardware búðir borgarinnar..Byko, Húsó, Bauhaus og margar aðrar sem eru minni.

Bóndinn flýgur austur í kvöld og bíður spenntur eftir að komast í húsið og byrja að setja upp skrautlista, flísaleggja, mála innréttingar og fleira spennandi.

Á meðan verðum við Junior fyrir sunnan þar sem klára þarf nokkra leiki í Íslandsmótinu í fótbóó, fara í Stubbó með mömmu, skoða gardínuefni, mögulega fara aftur í Ikea ( nýi listinn er alveg að koma!!!), menningarnótt, labb á Esjuna ef veðrið fer að skána og margt fleira.

Svo tekur við skemmtileg síðasta vika í orlofi sem fer í decoratation vinnu í nýja húsinu, mála meira og skreyta og gera fínt. Er komin með dellu fyrir allt sem heitir hvítt, gamaldags og romance hönnun á heimilum. Reyndar ekki nýtt, alltaf verið stíllinn en föst í brúna-sveita lúkkinu sl. áratug og nú verður aðeins létt á lúkkinu og breytt til þar sem fjárfest var í fasteign, án þess þó að húsið líti út eins og hvít einangrunarstöð;)

Nýtt æði er t.d. að nota Eurobretti - vörubretti sem maður sér um allar trissur..í búðum þar sem vörur eru geymdar á, úti við hús og þá aðallega hjá fyrirtækum. Búin að rekast á margar síður, íslenskar og erlendar sem sýna sniðugar hugmyndir. Miðað við öll brettin sem frúin hefur séð á Reyðarfirði er eflaust hægt að fá 1-2 stk. án endurgjalds og hægt að breyta í hillu eða borð eða botn fyrir rúm...fullt af hugmyndum:)

Skrítið samt að vera í sumarfríi í ágústmánuði. Búðirnar farnar að auglýsa "Skólavörur" og "Haustlínan komin í hús"! Á að banna svona fram í tímann hugsunarhátt fyrir okkur greyin sem fórum seint í sumarfrí þetta árið - ekkert ósvipað jólaumræðunni mörgum mánuðum of fljótt;)

Frúin er líka búin að föndra aðeins í útlitinu á síðunni ef einhver nennir að lesa eða kíkir hér inn. Þarf eitthvað að gera í gestabókinni svo allir geti skrifað, ekki bara google aðgangsfólk. Hefði átt að taka betur eftir í tölvunarfræðitímum í menntó í den...;)

Jæja, best að athuga hvort ekki sé hægt að hlaða meiri farangri á bóndann og vona að flugvélin beri það nú allt saman - góðar stundir:)

Saturday, August 4, 2012

Sumarfrí!!!!!!!!!



Loksins komst frúin í sumarfrí:)

Öll familían stödd í góðu yfirlæti í bongóblíðu á Álftanesinu fagra. Húsaskil og þrif á leiguhúsnæði yfirstaðin og frúin var alveg uppgefin þegar fríið hófst í borginni. Framundan eru dásemdardagar og heimför aftur astur í fjöllin einhvern tíma seinna...

Rapport síðar - gleðilega verslunarmannahelgi :)