Thursday, December 27, 2012
Hvar er myndavélin?
Gleðileg jól öllsömul...vona að þið hafið átt góð jól. Hér voru jólin akkúrat eins og frúin var búin að panta: matur, matur, hvíld, hvíld, hundahár, fullt af hundaslefi og fjölskyldusamvera (rúllaði upp Fimbulfambi spilinu tvö kvöld í röð, en ekki hvað;)...bara gott:)
Þemað þessi jólin var: "Hvar er myndavélin?". Hún hvarf að kvöldi 21. desember og hefur ekki sést síðan. Daðraði við að þetta væri hrekkur og hún myndi birtast í einhverjum jólapakkanum en bjóst ekki við að bóndinn myndi þora að hrekkja frúna svona svaðalega vitandi hvaða skapgerðarbresti slíkt myndi hafa í för með sér;)
Ákvað því að taka æðruleysispólinn á þetta, myndavél er dauður hlutur sem skiptir engu máli auk þess sem frúin mundaði bara myndavélina hjá tengdó;) Verst að þau eru á heimleið á morgun og þá hefst leitin að nýju. En ef þið finnið myndavél, þá á frúin hana!
Eins og sést á myndinni af Southfork þá er allt á kafi í snjó hérna. Vöknuðum við hvítt vetrarland á aðfangsdagsmorgni og það heldur bara áfram að snjóa - töluvert betra en svarta myrkrið og rigningin sem var í desember:) Ef einhvern vantar snjó þá er um að gera að skella sér austur og ná í smá, nóg til handa öllum.
Birti mynd af einni jólagjöf sem ég fékk á Facebook frá bóndanum, ljótt að monta sig af jólagjöfum og bara mont almennt en verð að skella inn smá viðbótarmonti...jólagjöfin frá tengdó, nýja uppáhaldsgræjan mín í stóru hundahárahúsi...feminístar landsins, andið rólega...þetta er ryksuga vívíí:)
Best að halda áfram að njóta þess að vera heima í jóla-áramótafríi, alveg dásamlegt enda ekki gerst í mörg mörg möööörg ár að fá langt jólafrí:)
Knús öllsömul, verið nú dugleg að borða og borða aðeins meira:)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment
Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.