Friday, August 30, 2013

Orlofsrestin búin

Jæja já...sko orlofsrestin var tekin í kringum síðustu helgi og úr varð löng fríhelgi í höfuðstaðnum. Þar áður voru gestir og svo er bara svo ofsalega mikið að gera á Office og þá er bara ekkert blogg.
 
Var samt búin að smella nokkrum myndum en komst ekki af stað að birta þær.
 
Frúin bara varð, varð, vaaarð að eignast svona stóra, djúsí krukku eins og Dossa í www.skreytumhus.is á. Þar sem hefur verið krónískur skortur á sprittkertum í Krónunni hér í sveitinni þá var fjárfest í tveimur stórum pökkum frá Ikea og krukkan fyllt! Skrautmyndaramminn kemur svo frá Pier:)
 
 
Þessir tveir fallegu koníaksbrúnu kertastjakar fundust einnig í Pier, voru til í fleiri litum en þeir passa bara mjög vel inn í alhvíta eldhúsið. Bakkinn undir þeim kom frá Góða Hirðfíflinu eftir hvíta spreyumferð.
 
 
Þessi sjaki ( á tvo ) var brúnn og rauður, keyptur fyrir mörgum árum í Rúmfatalagernum. Hann fékk líka sprautun!
 
Gamli sjónvarpsskápurinn nýtur sín því áfram sem ágætis skrauthilla þarna að ofan þar til annað kemur í staðinn.
 
 
Orlofsþynnkan er enn í gangi en hér eystra er ljómandi fínt veður þrátt fyrir vonda veðurspá víða á landinu þessa helgina. Hér er verið að koma sér aftur í rútínu eftir að junior mætti á svæðið eftir sumarútlegðina sína. Vakna í skólann, lærdómur og allt sem þessu fylgir er bara allt í lagi;)
 
Hér er amk. búið að fjárfesta í Erikum þar sem haustið er tími frúarinnar ( sporðdrekans ) með tilheyrandi litabreytingum, myrkri og kertaljósum:)
 
Góða helgi
 
 
 

 

Monday, August 19, 2013

Kertakassi

Er ekki frá því að einhver orlofsþynnka sé í gangi? Alveg afskaplega þreytt þennan mánudaginn eftir officedaginn þrátt fyrir að vinnan hafi byrjað í síðustu viku...tekur tíma;)
 
 
Smelli þó inn því nýjasta í eldhúsglugganum - blómatrékassi sem ég nota sem...kertastjakakassa en ekki hvað!
 
 
 
 
 
 
Mér finnst hann voða fínn þarna og smellpassar. Stutt í þetta skiptið:)

Sunday, August 18, 2013

Sunnudags...

Hér í Southfork voru gestir í helgarheimsókn úr Hafnarfirði og því var ekkert bloggað. Líf og fjör í húsinu þegar fimm manna fjölskylda bætist í hópinn, bara gaman:)
 
En smá myndablogg úr stofunni sem náðist ekki að birta fyrir helgi...aðeins búin að bæta við/breyta með gráum litum og smá túrkisbláu áfram.
 

 
 
Er ofsalega ánægð með þessa fallegu glerkúlu sem fannst í Góða Hirðfíflinu.
 
 
 
 
Aðeins að litapoppa stofuna áður en könglar og haustskraut fer að týnast inn.
 
 
 
Og aftur er það eitthvað úr Góða Hirðfíflinu;)
 
 
Eigið góðan sunnudag, hér er náttbuxnaletifílingur og alveg spurning að leggja sig bara aftur!...Lúxusinn að vera í barnlausu húsi en juniorinn ( stóri unglingur ) kemur brátt aftur á svæðið eftir fótboltaútlegðina.
 


Wednesday, August 14, 2013

I'm back babies:)

 
Komin heim í fjöllin eftir ofsalega gott frí sem var að mestu eytt á Álftanesinu fagra með viðkomu á Laugarvatni og alls konar fleiri stöðum. Góða veðrið mætti á suðurlandið og því hefur frúin nánast verið í góðu veðri í allt sumar, lovely:)

En hvað haldið þið að gerist í svona orlofi í kringum höfuðborgarsvæðið...jújú það er kíkt í nokkrar "dúllubúðir" og svo í aðeins fleiri!
 
 
Komnir smá litir, sá þessi fallegu kerti í Ikea og liturinn var svo flottur og poppar upp allt þetta hvíta enda sagðist ég ætla að fara að litavæða Southfork aðeins meira, en samt bara passlega;)
 
 
 
Svo var auðvitað farið í Góða Hirðfíflið þar sem minni stjakinn og litli teljósa fengu að rata ofan í körfuna.
 
 
"Áttu örugglega nóg af kertastjökum?" sagði einn bóndi hér á bæ með mjög sposkan svip! Held það tæki heilt kvöld að kveikja á öllum kertunum sem eru hér á víð og dreif...aðeins að undirbúa þegar dimman skellur hér á.
 
 
Er bara nokkuð ánægð með þessa útkomu á borðinu..hvítt, grátt og túrkisblátt...bara fallegt:) Löberinn var keyptur í sumar í gallerí á Seyðisfirði og heitir Lífsins Blóm og var innblásinn af gömlum blómateikningum ef mig minnir rétt.
 
Þið kannski hafið áhuga á að sjá aðeins meira innlit af stofunni og fleira smádóti á morgun?
 
Gaman að vera komin aftur...takk þið sem sýnið þessu bloggi áhuga og kíkið hér við, nóg af nýju/gömlu sætu smádóti sem þarf að deila með ykkur;)
 
 

Saturday, July 27, 2013

Sjáumst síðar...

 
Púkarnir eru farnir á flakk...bara innanlands amk. í þessari lotu. Hlakka mikið til að komast á Laugarvatnið yndislega og hitta gamla bátinn og nýju árarnar...mótorinn er víst utan þjónustusvæðis.
 
Mest gaman og yndislegast verður þó að taka á móti Junior í Leifsstöð og knúsa enda drengurinn verið fjarri okkur í allt sumar.
 
Knús knús í bili - sjáumst aftur í ágúst:)
 
 
 


Thursday, July 25, 2013

Baðherbergissýnishorn

 
Þar sem Reykjavík-Roadtrip með næturstoppi norðan heiða fer að bresta á, þvottavélar á fullu svo hægt verði að pakka í töskur og öllu því sem fylgir flakkundirbúning...þááá verður nett pása á blogginu.
 
Leyfi að fljóta með hérna svona smááá pínku innliti á baðherbergið. Var búin að segja áður frá makeoverinu sem var framkvæmt hér. Síðan þá er búið að mála og aðeins breyta...
 

 
Eftir miklar pælingar var liturinn antikgulur...já gulur takk fyrir pent, valinn á veggina. Kemur bara ansi vel út og brýtur upp hvítu Bóndasmíðuðu
innréttinguna.
 
 
Meira síðar;)

Tuesday, July 23, 2013

Sumarfrí með stóru essssiiiiiiiiiiii..........:)

er skollið á:) Svalirnar eru góðar á sólardegi sem þessum og allir íbúar flykkjast út, vantar bara fótboltajuniorinn en hann er í brakandi blíðu í fótboltasælunni í Danaveldi.

 


 
 
 
 
Og já..var ég búin að minnast á að sumarfrí er hafið...:):):)
 
 
Gleðilegt sumar
 



Monday, July 22, 2013

Bóndinn kaupir kertaskraut!

 Í góða veðrinu á Seyðisfirði í gær var kíkt inn í búðina Gullabúið. Þar fann bóndinn...JÁ bóndinn þessa sætu kertaveggstjaka. Er að leita að svona stærri kertalugtarstjökum, ekki fundið og þessir koma bara prýðisvel út þangað til.
 
 
 
 
 

 
 
 Eru þeir ekki bara voða-voða sætir? Svo bjart úti að ég þarf að mynda aftur birtuna þegar dimmir sem kemur frá kertunum, það verður kósý í vetur í myrkrinu hérna með svona kertaljós:)
 
 


Sunday, July 21, 2013

Mynstur og smá litir

 
fá að njóta sín á home Office. Ákvað að prufa aðeins að nota Chevron mynstrið sem ég talaði um í gær og finnst það bara svolítið smart og venst, bara mjög einfalt og hægt að hafa í öllum regnbogans litum.

 
 
 
 
 Heimaskrifstofan er enn í mótun og akkúrat núna stödd á mjög "skemmtilegu" tiltektar-ákveða lúkk-flokka pappíra...æi bara hefðbundinn allt á hvolfi herbergi.
 
Þessi sunnudagur var annars dásamlegur (varúð..veðurupplýsingar)! Það var yfir 20 stiga hiti, blanka logn og algjör útlandastemnning. Svo mikil að frúin fékk sér glas af svona á Seyðisfirði.
 
 
Bless í bili:)