Flensa með öllu tilheyrandi lagði undirritaða í rúmið fyrir rúmum tveimur vikum síðan. Kvefið og hóstinn eru nýlega farin á brott og líka eitthvað af sleni sem fylgir svona veikindum en allt að koma. Mikið óskaplega sem hægt er að verða "lítil" aftur þegar heilsan fer frá manni þó ekki sé nema í nokkra daga. Bráðum 9 mánaða ólétta bætir svo ekki ástandið. Heilsan skiptir okkur svo miklu máli og finnum aldrei meira fyrir því en akkúrat þegar hún er ekki til staðar.
Fann fyrir þessu í borginni um daginn. Er vön að fara um eins og þeytivinda alltaf þegar ég er stödd í Reykjavík og gat það ekki í þetta skiptið þökk sé barni í bumbu sem ýtir á grindina og gerir göngu í besta falli kómíska og líka sársaukafulla.
Þannig passið upp á heilsuna ykkar kæra fólk og það er víst ekkert í heimi hér sjálfgefið. Að þessu sögðu þá fara að detta inn fleiri póstar og myndir næstu daga. Prinsessuherbergið góða er nánast tilbúið, undirbúningur á lokastigi og styttist í borgarferð til að bíða eftir því að daman mæti á svæðið.
Í millitíð veikinda var nú samt ekki hægt að sitja eða liggja alveg auðum höndum - þetta snýr nú aðallega að bóndanum þar sem frúin var nú til lítilla afreka. Það "vantaði" og já eiginlega í alvöru og gæsalappir óþarfar, einhverja mublu yfir vegginn í borðstofurýminu. Mikið búin að spá og spögglera, kaupa nýja skápa, smíða sjálf, horfa til snillinga eins og Soffíu hjá skreytumhus.is sem umbreytti Ikea hillu í ofsalega flotta hillueiningu sem þverar heilan vegg eða hvað?
Duttum svo niður á rúmlega 30 ára gamlan skenk sem var til sölu. Eflaust yfir 100 kílóin að þyngd úr massívri eik og viti menn...hann er bara komin hingað í Southfork með aðstoð kraftajötna og bara smellpassar :)
Meira um skenkinn góða fljótlega - njótið annars laugardagsins kæru vinir.
Hér er setið við lærdóm :)
Saturday, April 23, 2016
Monday, April 4, 2016
Niðurtalning er hafin - 4 vikur til stefnu
Það styttist og styttist...fjórar vikur í settan dag og batteríin eru að tæmast. Frágangur í vinnu og skrifstofutiltekt eins langt og það nær. Magnað hvað maður telur sér trú um að geta farið frá tómu borði og "klárað" allt, það er víst aldrei svoleiðis. Svo rúllar skipið alveg áfram og siglir þó mann vanti um borð en það er stundum ágætt að halda að maður sé ómissandi ;)
Undirrituð og bóndinn voru í borginn um nýliðna helgi. Tíminn var auðvitað notaður í gæða samveru með einkasyninum sem var hér um páskana og hafði því ekki tíma til að sakna foreldranna í þetta skiptið, svo stutt á milli hittinga :) En einnig þurfti að koma við í Ikea og Rúmfó og jújú blessaða Bauhaus sem var okkar annað lögheimili þegar mestu framkvæmdirnir voru hér fyrir 2 - 3 árum.
Bleika prinessuherbergið er allt að smella. Fyrir utan gardínur þá vantar í raun bara bleiur og barn og þá er þetta komið! Daman mun þó sofa fyrst um sinn inni í svefnherbergi í fallegri vöggu sem er á leiðinni hingað austur frá dásemdar frænku. En þar sem hér er nægt pláss er gaman að dúllast í þessu herbergi og hafa líka rúmið tilbúið þegar þar að kemur.
Vona þið eigið gott kvöld framundan hvar sem þið eruð stödd og látið ekki ástand þjóðmálanna hér skemma fyrir ykkur innri frið, skreytinga- og framkvæmdagleði...þið munið að það þarf ekki að kosta miklu til. Bara einn spreybrúsi og hægt er að umbreyta gömlu í nýtt :)
Subscribe to:
Posts (Atom)

