Miðað við umferðina hér á síðuna frá því gær þökk sé smá "plöggi" frá yndislegu www.skreytumhus.is þá er kannski ekki úr vegi að kíkja inn í eldhús.
Fyrir ykkur sem eruð hér í fyrsta skipti þá tókum við þetta eldhús í gegn fyrir 2 árum síðan. Gegnumtakan fólst í því að halda upprunulega innréttingunni, mála hana hvíta, bæta við hana fulningarlistum, nýjum höldum, skrautlista og svo borðplata...sem bóndinn græjaði ekki einu sinni heldur tvisvar sinnum. Fyrst var hún svartlökkuð með trukkalakki, svo var smíðað ofan á hana og er núna massív með timburlúkk...heppnaðist svona ljómandi vel.
Settum nýtt parket, gamli gólfdúkurinn var ekki alveg að gera sig.
Eldhúsið var græjað af bóndanum eftir "innblæstri" frá mér...er ekki smart að
segja það?
Bless í bili :)
Flott blogg hlakka til að fylgjast með
ReplyDeleteVirkilega fallegt og hlýlegt eldhús :)
ReplyDeleteKv. Sigga Rósa
Æði :)
ReplyDeletekv Anna Braga
Þú átt mjög fallegt eldhús og borðplatan er geggjuð!
ReplyDeletekv Ása
Kærar þakkir fyrir það Ása og takk fyrir að kíkja hérna við :)
ReplyDelete