Friday, December 28, 2012

Bakka....bilun;)

Bakkar, bakkar, bakkar og fleiri bakkar. Er orðin ansi hrifin af bökkum og þeirri hugmynd að nota þá í skraut-tilgangi. Forma svo skemmtilega inn litla hluti s.s. kerti, bækur eða annað óþarfa dót.

Frúin á ekki marga bakka sjálf en þeim mun eflaust fjölga á næstu misserum. Fann amk. einn 800 kr. hringlaga bakka í Ilvu rétt fyrir jól og hann nýtist vel í eldhúsinu með fína englakertinu frá HeklaÍsland og öllum könglunum frá tengdó. Þannig ef einhver á bakka sem ekki er notaður þá er tekið á móti þeim í Southfork:)

Urban - A wooden tray of candles and books atop a coffee table


Bakkauppstillingarnar í Southfork sem og myndataka er kannski ekki alveg jafn glamúröss og hér að ofan en alveg nógu gott í bili;)

 
 


Stóri hvíti fluttist svo inn í stofu og verður þar væntanlega bara áfram..




Aðventu"kransinn" í ár...


Kertavaxið flæddi óþarflega mikið um allt skrautið og svona í ljósi þess að aðventan er búin þá fékk þessi bakki smá breytingu í dag, myndirnar voru teknar af síma og því ekki alveg nógu góðar...jájá...hvar er myndavélin?????

 
 

Ætli fleiri séu svona bilaðir;)

Knús þangað til næst...snjónum að rigna burt og slabbið fyllir göturnar.

No comments:

Post a Comment

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.