Monday, December 31, 2012

Áramótakveðja..

 

Síðasti póstur ársins 2012:)
 
2013 að detta inn í hús eftir nokkrar klukkustundir sem óskrifað blað, ný byrjun.
 
Frúin hefur haft þann háttinn á að lista upp helstu viðburði þess árs sem er að líða og jafnvel punkta niður markmið og það sem er vitað að verður líklega efst á baugi á nýju ári. Þessi upplistun er gerð í gamaldags dagbókarskrifum með penna og pappír, ekki á tölvu;) Svo margt sem gerist alla daga, hvað þá á einu ári og ágætt að hafa smá yfirsýn yfir allt það hversdagslegt eður ei, sem gerist.
 
Ekki hægt að segja annað en að húsakaup okkar hjónaleysa á Southfork hafi nú verið með stærri og merkilegri viðburðum hjá okkur á árinu. Í kjölfar þess fékk þessi Púkasíða líka nýtt útlit, nýja staðsetningu og nýtt líf. Frúnni finnst ofsalega gaman að sjá að daglega kíkja alltaf einhver yndi hér inn, það er ekkert annað en hvatning til þess að halda áfram að skrifa, setja inn myndir og hvað eina sem kemur í kollinn hverju sinni.
 
Eitt markmið verður þó sett, hvort það næst kemur í ljós...Að finna myndavélina!;)
 
Slútta þessu með nokkrum myndum af áramótaborðinu 2012, pavlovu in the making og smá náttúru frá Reyðarfirði - afsaka myndgæðin, þó "símamyndavélin" sé flott;)
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Knús til ykkar allra með óskir um frábært og gleðilegt nýtt ár - sjáumst á næsta ári.
 
Austfjarðapúkar.

 


Friday, December 28, 2012

Bakka....bilun;)

Bakkar, bakkar, bakkar og fleiri bakkar. Er orðin ansi hrifin af bökkum og þeirri hugmynd að nota þá í skraut-tilgangi. Forma svo skemmtilega inn litla hluti s.s. kerti, bækur eða annað óþarfa dót.

Frúin á ekki marga bakka sjálf en þeim mun eflaust fjölga á næstu misserum. Fann amk. einn 800 kr. hringlaga bakka í Ilvu rétt fyrir jól og hann nýtist vel í eldhúsinu með fína englakertinu frá HeklaÍsland og öllum könglunum frá tengdó. Þannig ef einhver á bakka sem ekki er notaður þá er tekið á móti þeim í Southfork:)

Urban - A wooden tray of candles and books atop a coffee table


Bakkauppstillingarnar í Southfork sem og myndataka er kannski ekki alveg jafn glamúröss og hér að ofan en alveg nógu gott í bili;)

 
 


Stóri hvíti fluttist svo inn í stofu og verður þar væntanlega bara áfram..




Aðventu"kransinn" í ár...


Kertavaxið flæddi óþarflega mikið um allt skrautið og svona í ljósi þess að aðventan er búin þá fékk þessi bakki smá breytingu í dag, myndirnar voru teknar af síma og því ekki alveg nógu góðar...jájá...hvar er myndavélin?????

 
 

Ætli fleiri séu svona bilaðir;)

Knús þangað til næst...snjónum að rigna burt og slabbið fyllir göturnar.

Myndir á veggi

Svona í ljósi þess að fína myndavélin finnst ekki enn og tengdó eru lögð af stað suður á Álftanesið fagra með sína myndavél, þá er ágætt að fara í gegnum nokkrar myndir í tölvunni og reyna að koma einhverju í framköllun og skella upp á veggina á nýju ári.

Langar svolítið að skreyta tóma hreindýrabrúna vegginn sem er hluti af stofunni með fallegum ljósmyndum...



Var að spögglera í því að láta framkalla nokkrar myndir og annað hvort prenta þær á striga eða hafa þær í stærri kantinum í hvítum eða svörtum römmum. Myndirnar sem um ræðir eru ekki týpískar andlitsmyndir af fólki heldur af því sem frúnni fannst fallegt að mynda m.a. á Laugarvatni og Álftanesi, á vel við enda eru það tveir uppáhalds staðirnir:)

Þetta eru myndirnar sem eru í pottinum núna:




 
 
 
 
Svo er líka spurning með þessar, teknar hérna á Reyðó hjá skógræktarsvæðinu:
 
 
Junior alltaf flottur..
 
 
Á svo margar fallegar myndir frá klaustrinu í Skotlandi líka en spurning að hafa íslenskt þema og nóg til af myndefni hér frá Austurlandinu sömuleiðis;)
 
Svo er auðvitað pöntunarlisti í gangi hjá múttu málara, nóg til af flottum málverkum í hennar penslum;)


Það er nú smá söknuður yfir myndavélinni:( Hún bara verður að finnast, annars þarf að byrja safna fyrir einhverri stærri Canon Mega vél...;)

En hvað segið þið, gætu svona myndir í stærri kantinum gengið á tóma hreindýrabrúna vegginn?

Thursday, December 27, 2012

Hvar er myndavélin?


Gleðileg jól öllsömul...vona að þið hafið átt góð jól. Hér voru jólin akkúrat eins og frúin var búin að panta: matur, matur, hvíld, hvíld, hundahár, fullt af hundaslefi og fjölskyldusamvera (rúllaði upp Fimbulfambi spilinu tvö kvöld í röð, en ekki hvað;)...bara gott:)

Þemað þessi jólin var: "Hvar er myndavélin?". Hún hvarf að kvöldi 21. desember og hefur ekki sést síðan. Daðraði við að þetta væri hrekkur og hún myndi birtast í einhverjum jólapakkanum en bjóst ekki við að bóndinn myndi þora að hrekkja frúna svona svaðalega vitandi hvaða skapgerðarbresti slíkt myndi hafa í för með sér;)

Ákvað því að taka æðruleysispólinn á þetta, myndavél er dauður hlutur sem skiptir engu máli auk þess sem frúin mundaði bara myndavélina hjá tengdó;) Verst að þau eru á heimleið á morgun og þá hefst leitin að nýju. En ef þið finnið myndavél, þá á frúin hana!

Eins og sést á myndinni af Southfork þá er allt á kafi í snjó hérna. Vöknuðum við hvítt vetrarland á aðfangsdagsmorgni og það heldur bara áfram að snjóa - töluvert betra en svarta myrkrið og rigningin sem var í desember:) Ef einhvern vantar snjó þá er um að gera að skella sér austur og ná í smá, nóg til handa öllum.

Birti mynd af einni jólagjöf sem ég fékk á Facebook frá bóndanum, ljótt að monta sig af jólagjöfum og bara mont almennt en verð að skella inn smá viðbótarmonti...jólagjöfin frá tengdó, nýja uppáhaldsgræjan mín í stóru hundahárahúsi...feminístar landsins, andið rólega...þetta er ryksuga vívíí:)



Best að halda áfram að njóta þess að vera heima í jóla-áramótafríi, alveg dásamlegt enda ekki gerst í mörg mörg möööörg ár að fá langt jólafrí:)

Knús öllsömul, verið nú dugleg að borða og borða aðeins meira:)





Thursday, December 20, 2012

Meiri snjó, meiri snjó...


Jæja loksins búin að setja upp útiseríur á Southfork, er ekki orðið agalega fínt hjá okkur;)

Styðsti dagur ársins í dag sagði einhver á Office. Hér var kolniðarmyrkur þegar lagt var af stað í vinnu og sama myrkur beið þegar haldið var heim á leið. Sólin er auðvitað komin í vetrarfrí fyrir löngu síðan og sést ekki aftur fyrr en líður að vori á næsta ári! Svo er rigning og rok og vá hvað það er dimmt og svart. Ef einhvern tímann má vera allt á kafi í snjó þá er það núna takk fyrir pent!

Við junior fjárfestum í millistóru feitu jólatré áðan (hans mat pínulítið) en það dugar bara fínt. Svo var skroppið á milli búða og fyrir utan Byko varð burrinn rafmagnslaus, geymirinn eitthvað í ruglinu þessa dagana. Hvað gerir maður þá, jú blikkar bara hæstráðandann í Byko og þeir redda málunum eins og öllu öðru:) Ein af mörgum góðum sögum sem til eru um hjálpsemi íbúanna í svona minna samfélagi.

Bóndinn er haldinn framkvæmdamaníu korter í jól, búið að færa þvottahúsið og guð má vita hvað verður gert seinna í kvöld og áður en jólin mæta á svæðið. Junior er líklega að fara niður í stórt-stærri-stærst herbergi sem þarf víst eitthvað að föndra við fyrir vorið.

Hafið það annars sem allra best - hér eru enn ein jólin þar sem junior sér um bakstur á smákökum en fyrstu jólin í nýju húsi og gestirnir alveg að smella í hús. Svo verður sú nýbreytni í fyrsta sinn í 4 ár að vera hér bæði um jól og áramót...já gott fólk, þetta eru 5. jólin okkar hérna í fjöllunum!

Bless í bili...;)

Monday, December 17, 2012

Kæri jóli

 
Ó svo margt fallegt til sem er á draumaóskajólalistanum eða bara á hvaða óskalista sem er...má alveg láta sig dreyma...erþaðeggi;)



Þessir eru sko fullorðins, ekki barna þó þeir séu svona bleikfjólubláir..;)

Svona gengur líka, ágætt í snjónum og slabbinu núna.

 
Skoo...frúin er mjög svo gamelldags þegar kemur að tækni og á bara fínasta gsm síma sem er með tökkum! Spurning samt hvort svona endi einhvern tímann í frúarhöndum amk. eiga bæði bóndi og junior svona s.s. snjallsíma, veit ekkert hvað þessar tegundir heita, verst að undirrituð kann ekki á svona fínar græjur...someday.
 
 
Kósý náttföt+jól= góð blanda:)
Aldrei hægt að eiga nóg af make up...er það nokkuð?
 
 
 
Hitt og þetta óþarfa dót fyrir heimilið en meira svona fyrir augað og til að skreyta aðeins meira;)
 
 
 
Ittala eru alltaf flottar vörur
 
Engin jól ef það er ekki ein bók í jólapakkanum..
 
 
 
Langar mikið að sjá þessa en það verður víst að bíða til næsta árs þar sem Austfjarðapúkar halda sig í fjöllunum í kringum frumsýningardaga myndarinnar..
 
 
 
En þangað til þá verður bara tekið gott maraþon á þessar í jólafríinu, alveg komin tími til að heimsækja The Shire og Middle Earth (nördalegt, yes please)
 
 


Listinn getur verið endalaust, allt frá stóru og til smárra hluta, hlakka þó mest til að eiga vonandi gott frí, borða nóg af góðum mat, makkintosh nammi í milli mál og jólaöl alla daga...ohh. Nú vantar bara stuðið til að klára rest af jólagjöfum, jólaskreyta meira og gestavæna aðeins neðri hæðina fyrir tengdaforeldrana sem eru væntanleg um jólin...jájá gerum það bara á morgun;)
 
Blessi í bili...:)