Thursday, December 20, 2012
Meiri snjó, meiri snjó...
Jæja loksins búin að setja upp útiseríur á Southfork, er ekki orðið agalega fínt hjá okkur;)
Styðsti dagur ársins í dag sagði einhver á Office. Hér var kolniðarmyrkur þegar lagt var af stað í vinnu og sama myrkur beið þegar haldið var heim á leið. Sólin er auðvitað komin í vetrarfrí fyrir löngu síðan og sést ekki aftur fyrr en líður að vori á næsta ári! Svo er rigning og rok og vá hvað það er dimmt og svart. Ef einhvern tímann má vera allt á kafi í snjó þá er það núna takk fyrir pent!
Við junior fjárfestum í millistóru feitu jólatré áðan (hans mat pínulítið) en það dugar bara fínt. Svo var skroppið á milli búða og fyrir utan Byko varð burrinn rafmagnslaus, geymirinn eitthvað í ruglinu þessa dagana. Hvað gerir maður þá, jú blikkar bara hæstráðandann í Byko og þeir redda málunum eins og öllu öðru:) Ein af mörgum góðum sögum sem til eru um hjálpsemi íbúanna í svona minna samfélagi.
Bóndinn er haldinn framkvæmdamaníu korter í jól, búið að færa þvottahúsið og guð má vita hvað verður gert seinna í kvöld og áður en jólin mæta á svæðið. Junior er líklega að fara niður í stórt-stærri-stærst herbergi sem þarf víst eitthvað að föndra við fyrir vorið.
Hafið það annars sem allra best - hér eru enn ein jólin þar sem junior sér um bakstur á smákökum en fyrstu jólin í nýju húsi og gestirnir alveg að smella í hús. Svo verður sú nýbreytni í fyrsta sinn í 4 ár að vera hér bæði um jól og áramót...já gott fólk, þetta eru 5. jólin okkar hérna í fjöllunum!
Bless í bili...;)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

No comments:
Post a Comment
Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.