Þessir eru sko fullorðins, ekki barna þó þeir séu svona bleikfjólubláir..;)
Svona gengur líka, ágætt í snjónum og slabbinu núna.
Skoo...frúin er mjög svo gamelldags þegar kemur að tækni og á bara fínasta gsm síma sem er með tökkum! Spurning samt hvort svona endi einhvern tímann í frúarhöndum amk. eiga bæði bóndi og junior svona s.s. snjallsíma, veit ekkert hvað þessar tegundir heita, verst að undirrituð kann ekki á svona fínar græjur...someday.
Kósý náttföt+jól= góð blanda:)
Aldrei hægt að eiga nóg af make up...er það nokkuð?
Hitt og þetta óþarfa dót fyrir heimilið en meira svona fyrir augað og til að skreyta aðeins meira;)
Ittala eru alltaf flottar vörur
Engin jól ef það er ekki ein bók í jólapakkanum..
Langar mikið að sjá þessa en það verður víst að bíða til næsta árs þar sem Austfjarðapúkar halda sig í fjöllunum í kringum frumsýningardaga myndarinnar..
En þangað til þá verður bara tekið gott maraþon á þessar í jólafríinu, alveg komin tími til að heimsækja The Shire og Middle Earth (nördalegt, yes please)
Listinn getur verið endalaust, allt frá stóru og til smárra hluta, hlakka þó mest til að eiga vonandi gott frí, borða nóg af góðum mat, makkintosh nammi í milli mál og jólaöl alla daga...ohh. Nú vantar bara stuðið til að klára rest af jólagjöfum, jólaskreyta meira og gestavæna aðeins neðri hæðina fyrir tengdaforeldrana sem eru væntanleg um jólin...jájá gerum það bara á morgun;)
Blessi í bili...:)
















No comments:
Post a Comment
Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.