Einkasonurinn er farinn aftur í borgina og sama dag komu hér óvænt leigjendur á neðri hæðina sem áttu ekki að koma fyrr en 1. febrúar! Síðustu tveir dagar hafa því verið annasamir með eindæmum svo vægt sé til orða tekið að græja nokkurs konar orlofsíbúð sem átti að nýta janúarmánuð allan til að stússast í. Bóndinn hefur verið við sama heygarðshornið á einhverju orkutrippi sem virðist ekki hverfa þegar kemur að framkvæmdum. Það var ákveðið að loka neðri hæðina af og gera hana að sér íbúð með möguleika til útleigu og var þeirri hugmynd þjófstartað í gær. Því verða íbúar þarna niðri til loka apríl og þá styttist í að næsti íbúi birtist sem nú leigir eina bumbu og verður líklega með fastan leigusamning á heimilinu til amk. næstu 18 áranna.
Jólaskrautið er farið niður í kassa en jólatrénu verður fleygt út um helgina en skrautið af því er farið þannig það stendur bara eins og illa gerður hlutur í stofunni þangað til. Eins og það er hlýlegt og gott að hafa allt sem fylgir jólum og skrauti þá er ég líka ósköp fegin að losna við það. Hafa aðeins einfaldara yfirbragð og stílhreinna þó nóg sé nú eflaust hér af smádóti en smekkur er misjafn sem betur fer:)
Klæjar í lyklaborðið að panta mér fallega dagbók fyrir árið 2016. Er og hef alltaf verið sjúk í dagbækur og að skrifa niður. Það eru tvær íslenskar sem hafa verið vinsælar undanfarið. Önnur þeirra fæst á síðunni www.munum.is og er hönnuð af tveimur íslenskum ungum konum og byggist á því að hafa jákvæða sálfræði að leiðarljósi. Bókin er búin að vera svo vinsæl að hún víst uppseld en von er á nýrri prentun enda með sniðug og hvetjandi orð á síðunum eins og sjá má og greinilega markaður fyrir svona bók.
Af hverju var ég ekki búin að hanna mína eigin dagbók fyrir löngu síðan,hafandi svona gaman af dagbókum? Note so self : Vera vakandi fyrir hugmyndunum þegar þær koma upp í kollinn, annars bara fara þær á næsta stað þar sem viðtakandinn er tilbúin til þess að taka við þeim ;)
Svo er önnur íslensk sem heitir Tíminn minn 2016 búin að vera til sölu að undanförnu líka m.a. hjá Eymundsson og víðar.
Sjálf er ég agalega skotin í dagbókinni hennar Jennifer Jones sem er með skipulagsblogg og er hrifin af litum og skemmtilegheitum til að poppa upp allt skipulag sjá hér.
Fleiri týpur er svo hægt að sjá á síðunni Erin Condren og af nægu að taka.
Hugsa málið, mögulega verður splæst í eina svona "útlenska" tegund, enda margar svo flottar. Hafið það gott þar til næst og takk fyrir innlitið :)







