Jæja - nú er búið að flytja öll stór húsgögn upp í nýja húsið. Á bara eftir að fara með smádót og föt og þá er allt komið.
Þeir bræður (Ingólfur og Heimir) voru svo duglegir sl. mánudag að þeir fluttu þetta allt saman tveir á Subaronum hans Heimis og snjósleðakerran sem bóndinn smíðaði um árið var svo notuð til að ferja stóra dótið. Svo söngluðu þeir stanslaust. Semsagt engin flutningabíll kom við sögu þessara flutninga:)
Loftið á gangi og stofu sem var glansandi viðarpanell er orðið svona fallega hvítt, forstofan máluð og svefnherbergið orðið væmnislega fljólublábleikt. Málningarvinnan heldur svo áfram eftir sumarfrí.
Myndir koma inn síðar þar sem nettenging er ekki til staðar í húsunum þessa dagana.
Bóndinn er farin suður að fylgjast með Junior á Rey Cup mótinu sem er í gangi í Laugardalnum fram yfir helgina. Eftir situr frúin með ágætis verkefni: að klára að tæma leiguhúsnæðið og þrífa eitt stk. 150 fm. all by her lonesome! Reyndar búin með helming og blessað eldhúsið, það er nú alltaf verst og þá sérstaklega ofninn!
Sól og blíða en engin Bræðsla eða Franskir dagar þessa helgina heldur stórhátíðin Þrif og skil:)
Knús og góðar stundir.
Friday, July 27, 2012
Wednesday, July 18, 2012
Undirskrift
Í dag var skrifað undir kaupsamning vegna hússins Hæðargerði 39 á Reyðarfirði - já við eigum hús!
Meira síðar:)
Monday, July 16, 2012
Fjallageit
Frúin minntist á fjallgöngu sem hún skellti sér í sl. fimmtudag. Um var að ræða 6 klukkustunda göngu um Stöðvarskarð í 640 m hæð. Gengið er frá Stöðvarfirði yfir á Fáskrúðsfjörð. Aldrei farið í alvöru fjallgöngu áður!
Þetta var svo yndislega skemmtilegt og erfitt og því ekki að gera meira af þessu, ekki eins og það sé bara eitt fjall hér á svæðinu!
Frúin ætlar því að draga Junior og aðra sem nenna með í fjallgöngur (ef kalla má fjöll þarna á höfuðborgarsvæðinu) í ágústmánuði. Esjan er á to do listanum þó maður fari kannski ekki alveg á toppinn og svo er eitthvað sem heitir Úlfarsfell og annað sem er kennt við einhvern Helga.
Var einmitt að koma inn úr 1,5 klst. göngu með Zeldu. Enduðum í klettunum hérna fyrir ofan bæinn og horfðum niður á þorpsbúana, agalega góð með okkur;) Valið stóð um að pakka ofan í kassa eða fara út í sólina og auka við freknuforðann á andlitinu, ekki flókið. Kvöldmaturinn var svo ekki af verri endanum, skellti í vöfflur, held að fjallaloftið hafi eitthvað ruglað kellinguna...;)
Bóndinn er komin í vaktafrí og geri ráð fyrir að hann sjái bara um rest meðan við Zelda verðum uppi á fjöllum eða amk. á göngustígum:)
Junior er víst farin á "Hitt vatnið" = Hvaleyrarvatn með tengdó, Þórný Hörpu og Beethoven Birtu og mig grunar að þau fái sér sundsprett þar.
Bless í bili:)

Sunday, July 15, 2012
Mér finnst rigningin góð
Loksins, já ég skrifa og meina - rignir á Reyðarfirði! Grasið hér er allt orðið gult og í minni sögulegu fyrstu fjallgöngu sl. fimmtudag umbreyttist mjúkur mosinn yfir í kaktuslíkan gróður sem gerði það að verkum að það var ekkert sérstaklega mjúkt að setjast niður og hvíla sig;) Fjöllin eru meira að segja orðin þyrst.
Það tók sumarið fjögur ár að mæta á svæðið þar sem veðráttan sl. sumur hefur lýst sér í eftirfarandi = þoku! Frá hvítasunnuhelgi með inn á milli venjulegum dögum, er búið að vera yndislegt veður hérna. Svo gott að hitastig hefur verið frá 17 upp í 23 gráður :)
Hélt ég myndi seint dásama rigningu en það er ekki eingöngu fyrir blessaðan gróðurinn..nei, nei. Frúin kemur sér bara ekki í pökkunar/flutningsgír þegar úti er sól og bongó alla daga. Sem þýðir væntanlega að hér verður unnið af fullum kappi í dag, eða svona amk sett í einn og einn kassa;).
Hér eru nokkrar myndir sem voru teknar inni í húsinu, vona þetta raðist nú rétt því eins og margir vita er ég með eindæmum tæknióklár en þetta kemur allt saman. Það er nú flest heilt að innan í húsinu og upprunalegar innréttar frá 1975 með tilheyrandi orange lituðu baðherbergi og grænum marmaragluggakistum.
Á eftir að smella myndum af neðri hæðinni sem er rúmgóð og þar er líka herbergi bóndans, bílskúrinn með bílagryfju eða einhverju svona gati í gólfinu..Planið er svo að útbúa neðri hæðina til útleigu og verður Frændinn (Stebbi frændi bóndans) sérlegur ráðgjafi í þeim málum en hann kallar sig smið:)
Vona þið eigið góðan dag - hér verður nóg að gera :)
Ps - gaman að sjá hvort einhver sé nú að lesa þetta þannig þið megið endilega "kommenta":)
Saturday, July 14, 2012
Ný síða - nýtt hús!
Ný bloggsíða - nýtt hús!
Austfjarðapúkar ætla að prufa sig áfram á nýjum slóðum. Frúin hefur ekki skrifað í alltof langan tíma og nú er komin tími til þess að taka fram blað og penna...bíddu bíddu, ég meina lyklaborð og tölvuskjá og byrja glamrið.
Við erum búin að fá afhenta lykla og kaupsamningur verður vonandi kláraður fljótlega eftir helgi. Framundan er því heilmikil vinna enda margt og mikið sem þarf að gera við húsið jafnt innan sem utan en það tekur einhver x mörg ár og liggur víst ekkert á.
Þannig að dagarnir núna ganga út á að skoða síður eins og www.pinterest.com og howtochangeabighouseforverylittlemoney.is ;) Best að benda á að það er bóndinn sem liggur í þessum dúllusíðum, ekki frúin! Við ætlum að gera þetta svo agalega fallegt, allt hvítt og fjólublátt og bjútíful...eða svona næstum því ;)
Bóndinn fer í sumarfrí 26. júlí og flýgur þá suður til þess að fylgjast með Junior á Rey Cup spila með Álftanesi en eins og sum ykar ( gef mér það að einhver lesi þetta nú ) vitið, þá hefur hann verið í útlegð í Vesturtúninu í sumar:) Frúin verður í vinnu fram að verslunarmannahelgi og skundar þá suður. Verslunarmannahelgi þetta árið verður því eytt í Ikea og Bauhaus, ííhhaaaaa :)
Bless í bili :)
Subscribe to:
Posts (Atom)