Nýtt ár, ný verkefni og eflaust mörg áframhaldandi og endalaust viðvarandi verkefni (hóst.. þvottur og heimilisstörf)..er þá ekki best að halda svolítið utan um málin og koma skipulaginu í lag?
Datt ofan í www.pinterest.com enn og aftur og rambaði þar svo inn á fullt af alveg svaðalega amerískum húsmæðra/útivinnandi/kvenna/allskonar síðum. Eflaust rosalega gamaldags að fíla svona síður en frúin er svona listamanneskja, með alls konar to do lista og dagbækur ofan í öllum skúffum og rafrænt líka. Þarf stundum lista yfir listana og langar alveg í aðeins meira skipulag og því ekki að hafa það kannski svolítið fallegt líka bara í leiðinni;)
Datt svo inn í gúgglarann og skoðaði ýmislegt um skipulag heimilis og þá búmm...home family planner...oh mæ svo amerískt;)




Tiltölulega einfalt að útbúa eina svona fjölskyldu-heimilis-skipulagsmöppu. Skipta henni niður í kafla t.d. um fjármál, matseðil/innkaup, þrif, skipulag og bara það sem hentar. Óteljandi síður til þar sem hægt er að nálgast form og "eyðublöð" fríkeypis til prentunar og svo bara búa til sérlega dúllulega möppu nú eða ljóta, ef það hentar betur.
og auðvitað www.pinterest.com :)
Búin að græja svona möppu fyrir Southfork, meira segja skrifa inn í hana og spurning hvort það virki eitthvað betur við heimilisrekstur, leyfi ykkur að fylgjast með;)
ps - hefur einhver séð myndavélina, bara spurja????;)
Bless í bili.


No comments:
Post a Comment
Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.