Aftur komin föstudagur, Officevikan búin og helgarfrí framundan. Verkefni helgarinnar eru áframhaldandi frágangur á neðri hæðinni, dóti og kössum og svo aðeins að fara í gegnum allt sem búið er að troða inn í framtíðarskrifstofuherbergið. Miðað við fyrri reynslu verður lítið sem ekkert af þessu gert heldur slökun (leti), sjónvarpsgláp og mögulegt óhollustuát!
Það verður gestur hjá okkur hér í Southfork en besti vinur junior frá Álftanesinu verður hér um helgina og kemur sér vel að herbergi þeirra er niðri, hljóðdempast aðeins og eflaust fjör hjá þeim félögum;)
Allt jólójóló komið ofan í kassa þó fyrr hefði verið og líka allt svona meira clean-cut og einfaldara! Eins og jól og allt dót sem þeim fylgir er yndislegt, er líka dásamlegt að pakka öllu þessu aukadóti niður sem verður eiginlega of mikið þegar allt er yfirstaðið.
Aðeins komið einfaldara yfirbragð á eldhús, ekkert rautt eða grænt. Hvítu gluggarammarnir fá að hanga aðeins áfram, þó þeir séu tómir á meðan vantar gardínur;)
Skipulagspúkinn mætti á svæðið og búin að útbúa fína möppu fyrir Southfork. Mandarínukassi notaður til að geyma "skipulagsstöðina" þar til skrifstofa verður að veruleika. Stöðin er þó geymd upp í hillu inni í búri, líka notuð samt sem áður... en lítur svona út fyrir neðan Family Rules skiltið sem fékk pólitískt hæli í eldhúsinu;)
Sá alveg ofsalega fína mynd á pinterest.com af skipulögðu og fallegu búri. Búrið hér er ekki alveg jafn fallegt en það fékk smá skipulags-make over...work in progress..
Stofan sömuleiðis orðin einfaldari og bakkar ráða áfram ríkjum. Könglar og þess háttar fær að hanga áfram á bökkum amk. í janúar og kannski febrúar líka, svona vetrarþema í gangi;) Glimmerhreindýrin sjást hins vegar ekki aftur í bráð.
Kertaarininn voðalega berassaður án jólajóla en áfram könglar þar sem það er nú einu sinni vetur;)
Get svo bætt við "heilladísamálum" hússins þar sem gleraugu bóndans eru ónýt þeas. umgjörðin brotnaði, junior eyðilagði eitthvað við nýju spjaldtölvununa rétt eftir jól, send suður til afans, kom aftur viðgerð og það fyrsta sem gerist, hann man ekki password og allt lok lok og læs! Já svo í morgun þá hrinti frúin niður plastkassa með ljósaperum í, margar perurnar voru ekki í kassa...kom sér vel að eiga fína handryksugu þennan morguninn!
Nú er amk. kveikt á 5 kertum í Southfork - elsku álfar, er busavígslan ekki að verða búin?
Knús knús frá Austfjarðapúkum og eflaust öðrum verum líka:)



Rosalega fallegt hjá þér, arininn er æði og hús þar ofan á alveg sjúklega flott.... Manstu hvar þú fékkst þau?
ReplyDeleteFallegt heimilið þitt! :)
ReplyDeleteLangar að vita hvar þú fékkst bakkan á stofuborðinu? :)
Kata**
Kærar þakkir og innilegar þakkir fyrir að kíkja hér við og kvitta, bara æði:)
ReplyDeleteÉg keypti litlu húsin í Fjarðakaup í Hafnarfirði af öllum stöðum! Hafði séð svona hús á síðunni hennar Dossu, þetta eru minni týpur, hvíta fékk ég svo í Söstrene Grænu í Kringlunni. Langar samt í svona stór og leita að þeim;)
Hm..bakkinn á stofuborðinu ef þú átt við þennan "kassalaga" þá var hann keyptur í Blómaval, sá hvíti er þessi týpiski Ikea sem margir eiga;)
úbbs... gleymdi að taka fram hvorn bakkan ég meinti;)
ReplyDeleteVar að meina þennan ferhyrnda... er langt síðan þú fékkst hann þar? :)
Kata**
Sæl Sigrún,datt fyrir einskæra tilviljun inn á bloggið þitt, sem er mjög skemmtilegt og þið hjónin að gera meiriháttar flottar breytingar. Gaman að sjá hvað hægt er að gera flott fyrir "skynsamlegar fjárhæðir". Mig er búið að dreyma nokkuð lengi um kertaarinn, en þar sem ég á ekki handlaginn eiginmann þá hef ég haldið mig við draumheiminn.... ;) Ég var samt að spá hvort þið hjónakornin væru til í að gefa upp "uppskriftina" af arninum, því mér finnst hann svo flottur og í þeim dúr sem ég hef verið að láta mig dreyma um.
ReplyDeleteKveðja frá Seyðisfirði
Margrét
Kata - ég keypti hann snemma í haust, svona bakkar eru til víða og langar mögulega að mála þennan í framtíðinni:)
ReplyDeleteSæl Margrét og takk kærlega fyrir að gefa þér tíma til að kíkja hér við:)
ReplyDeleteKertaarininn var búin til úr afgangsefni sem var til og samanstóð af mdf plötum, litlum fulningalistum, frauðlistum sem við notuðum í loftið og gólflistum/gereftum ef ég er ekki að skrökva;) Í raun sami efniviður og var notaður til að græja eldhúsið og hurðir á ganginum. Svo lakkaður að innan.
Ég er ekki sú handlagnasta, ef þú vilt ítarlegri leiðbeiningar þá þarftu að spjalla við bóndann;)
Kær kveðja Sigrún.