Thursday, January 10, 2013

Eru álög á Southfork?

Jæja - frúin er komin með samsæriskenningu á nettu stigi!

Það er óhappadís tengd Southfork!!!!

Af hverju segir hún það? Jú sjáið til, eftir flutning inn í húsið:

* Ísskápur bilaði einu sinni
* Ísskápur bilaði aftur eftir viðgerð og vatn lak á parketið og er enn bilaður, núverandi skápur er lánsskápur
* Bíll frúarinnar er bilaður
* Þvottavélin fór að láta furðulega fyrir 2 dögum og ákvað að bila í gær
* Myndavélin er horfin, gjörsamlega, gjörsamlega horfin
* Bloggsíða þessi leyfir frúnni ekki að hlaða myndum inn á síðuna, hvað er það!
* Frúin er alltaf þreytt, slöpp og bara þreytt...ok tengist frekar járnskorti og þess háttar en hver veit;)
* Ljósaperan í þvottahúsinu var horfin í morgun því bóndinn þurfti að nota hana, frúin sló út allt rafmagn í morgun þegar hún reyndi að kveikja ljós í bílskúr til að ath. hvað kl. væri orðin, ætlaði að straujaði skyrtu í hálfmyrkvuðu þvottahúsi sem endaði með því að straujárnið brenndi gat eða bara bræddi efnið því stillinginn var ekki rétt! Það er einhverju óhappa að kenna, getur ekki annað verið;)
* Hinar Humor buxur Juniors finnast ekki!

Það eru eflaust einhver fleiri atriði, man þau bara ekki í augnablikinu.

Yndislegu vinnukellurnar á Office sögðu frúnni bara að kveikja á kertum og hugsa fallega til álfanna...það er kannski málið, álfarnir eru að drukkna úr sóti því það er kveikt á kertum öll kvöld í húsinu, all the time og þá vantar súrefni og eru að hefna sín:) Veit samt ekki hvað það segir um vinnukellurnar ef þær búa með álfum og nota kerti til að róa álfagreyin....

Bless í bili...:)




2 comments:

  1. hahaha pínu fyndið :)
    knús á ykkur og álfana :)
    kveðja Ingunn

    ReplyDelete
  2. ÆÆÆÆ ekki gott. Hefur þú einhvað talað við fyrri eigendur hússins. Hvernig þeim leið þarna? Voru veikindi hjá þeim? Það er ýmislegt sem getur valdið svona drauggangi. Vonandi gengur allt vel hjá ykkur. Eigið yndislegan dag.

    ReplyDelete

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.