Tuesday, January 29, 2013

Þakkir, þakkir og aftur þakkir!


Er ennþá hálforðlaus eftir fjölda heimsókna inn á síðuna frá því í gærmorgun, allra fallegu kveðjanna og "kommenta". Þið eruð algjört æði, þúsund þakkir:)

Mestu þakkirnar á auðvitað bóndinn sem er mastermindið á bakvið allar þessar framkvæmdir og ekki síst Dossa fyrir að hafa búið til þessa "múgæsingu" takk enn og aftur og fyrir blogghausinn nýja;)
 
Liturinn á ganginum heitir "Hreindýrabrúnn" og fæst í Byko. Búin að fá nokkrar fyrirspurnir um það. Leiðbeiningar um tegund málningar á innréttingu og hurðar koma við fyrsta tækifæri, get amk. sagt að málningin var hvít;)


 Framkvæmdum er hvergi nærri lokið í Southfork og upptalning ca. svona og langt í frá tæmandi:

1. Mála eldhúsið ( nýmálað hvítt en finnst rýmið of hvítt )
2. Mála stóra baðherbergið ( sama ástæða og eldhús )
3. Græja litla bað s.s. gólfefni, málning, hillur, myndir ofl.
4. Klára að mála loftlistana hvíta
5. Gardínur í eldhús og stofu...út með brúnu rimlana þó þeir bjargi miklu svona fyrst
6. Myndir, hillur og meira skraut á veggi;)
7. Neðri hæðin...oh boy allt frá málningu, gólfefnum og til allskonar verkefna
8. Skipta út gleri í nokkrum gluggum
9. Mála allt húsið að utan hvítt og laga múrskemmdir
10. Garðurinn...landslagsarktiektahugmyndir óskast!
11. Skrifstofa - breyta herberginu sem Junior var í
og svo margt, margt, margt fleira en þetta er ágætis listi til að byrja með;)
 
 
Hef lítið fjárfest í nýju "innanhússkrauti" þar sem Rvk.ferðina hefur vantað! Vonandi verður bætt úr því í febrúarmánuði, allt þó innan skynsamlegra marka þar sem fermning er missionið í mars fyrir fótbolta junior:) Á "langar í listann" er ýmislegt s.s. uglu- og búddastyttur! Halló...búin að sjá þessar uglur og finnst margar voða sætar. Á 2 litlar og krúttlegar búddastyttur sem keyptar voru í munkaklaustrinu í Skotlandi sl. haust, væri alveg til í eina svona aðeins grand þó frúin sé ekki búddatrúar, finnast þær bara fallegar og heimspekin á bakvið þessi fræði;)
 
 

Takk fyrir innlitið:)
 

No comments:

Post a Comment

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.