Monday, January 21, 2013

Fallegt blogg og meiri álfastríðni


Þegar tækniandinn kemur yfir frúnna, framkvæmdagleðin heldur áfram og myndavél á staðnum þá er spurning um að hafa svona ofsalega fallegt og flott blogg um breytingar á heimili svona eins og þessi dúllulega ameríska kella er með - sjá hér.

Um leið og fermingarstúss sem er framundan í mars er afstaðið og svo "smá" ferðalag á framandi slóðir í apríl - þá skellum við okkur í hönnunarbloggvinnu og gerum þessa síðu svaðalega flotta jájá;)

Álfarnir eru enn á sveimi í Southfork. Í nótt var frúin vakin upp við svakaleg læti þegar kassi með ungabarnadóti af Junior í (ekki stór kassi, lítill og sætur) datt úr efri skáp fataskápsins, á gólfið þannig að innihaldið dreifðist allt um gólfið! Í hísteríukasti var undirrituð alveg viss um að eitthvað dularfullt væri á seyði enda var þetta líkt og "ærsladraugur" hefði opnað skáphurðina og hent kassanum út með látum! Til mikillar gleði þegar mesta kastinu létti, sá frúin að hillan sem var undir kassanum var skökk og festing losnað. Við það hefur kassinn runnið áfram, opnað skápahurðina, innihald opnast en kassinn teinréttur á miðju gólfi! Álfahvað sei sei...jájá...spurning hvað gerist í nótt.

Sofið vel öllsömul;)

No comments:

Post a Comment

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.