Saturday, January 19, 2013

Þvottiþvott...


Laugardagslíf - ræktin búin, Krónan og þorrablótsmiðakaup en herlegheitin eru eftir 6 daga! Verkefni dagsins verða þvottur og svo aðeins meiri þvottur, kannast eflaust einhverjar(einhverjir) við það?

Lítið af framkvæmdum innanhúss í gangi en þó meira af framkvæmdaskipulagsvinnu í heilabúi frúarinnar. Ferming í mars og þangað til er víst þorrablót líka, fótboltaferð á Akureyri og ýmislegt fleira.

Það hefur aðeins létt á álögum hússins því þvottavélin er komin í gang aftur enda bara 2 ára gömul. Ekki skrúfur sem stífluðu hana eða þess háttar framkvæmdasmádót heldur hárspennur eða spílur eins og Fáskrúðsfirðingar kalla þær!

Svo eftir nokkra símafundi með tækni-tengdó fékk Junior spjaldtölvuna í gagnið aftur. Álfarnir hafa hins vegar ákveðið að skila ekki þið vitið hverju sem enn er týnd;)

Markmið ársins séstaklega það heilsuvænna eru í fullum gangi enda dugar ekki bara að fá vítamínspíttbombusprautur af og til heldur verður líka að setja minna eitur í kroppinn og meira af hreyfingu. Það er komið af stað aftur og hlakka bara til að komast í betra og betra form enda erum við Junior með markmið fyrir næsta sumar;)

Knús öll og eigið góða helga, þvottafjöll eður ei:)

No comments:

Post a Comment

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.