Wednesday, January 23, 2013

Skýjað með dass af dimmu og miklu myrkri

Sólin hefur ekki skinið á litla "þorpið" síðan í nóvember! Það er ekki svo slæmt og hefur vanist sl. ár en að undanskildu einu snjókasti í nóvember og öðru bókstaflega korter fyrir jól, hefur verið rigning og svo dimmt hérna að endurskinsmerki eiga í vök að verkjast, lýg því ekki:/

Janúarmánuður hefur þó flogið furðufljótt þrátt fyrir lítið framkvæmdastúss og almennt slen en nú fer þetta að verða ágætt. Það sást aðeins glitta í bláan himin í dag um hádegisbil þar sem hafði snjóað í fjöll og létti aðeins yfir öllu, svo fór það:(

Það jákvæða við dimmið = felur allan skít og ryk, engin hreinskilin birta til þess að sýna allar misfellur í andliti eða make up skil og fleiri önnur praktískt mál:)

Nk. föstudag er svo þorrablótið margfræga. Hafði aldrei farið á blót áður en við komum hingað austur og magnað hvað þetta eru nú skemmtilegar samkomur - hlakka orðið mikið til, verst að fataskápurinn virðist ekki hýsa neitt skemmtilegt en búin að sigta niður 2 outfit, annað er fjólublátt með dasss af glitrandi dóti, hitt er tigermunstrað..

Hvorn ætti frúin nú að velja...?



Knús frá Austfjarðapúkum...;)

No comments:

Post a Comment

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.