Wednesday, January 9, 2013

Kraftur og heilsa

Bloggslöpp þessa dagana og enn leitandi að helvískri myndavélinni!
Held það verði að fara viðurkennast að hún er svo sannarlega, sannarlega týnd. Ef The lady of the House finnur hana ekki, þá gerir það víst enginn;)

Aðlögun á fullu í vinnu eftir þetta góða jólafrí og að koma mataræðinu í lag eftir jólin...úff..sykur...púff.

Skipulag er eitt af verkefnum ársins 2013 og annað verkefni er heilsan óháð kg-fjölda þó það sé bara bónus heldur heilsa, heilsa, heilsa...gott mataræði, hreyfing og framkvæmdakraftur sem fylgir þá gjarnan í kjölfarið.

B12 vítamínsprautur (fyrir þau sem ekki vita þá þjáist frúin af "háalvarlegum, svaðalega miklum" skorti á þessu lífsnauðsynlega vítamíni!) Ok þessi alvarlegi-svakalegi partur er kannski svona bara aðeins til að lífga upp á hlutina en miðað við Gúgglið og læknaliðið í familíunni þá er ekki gott að mælast með svona lág gildi...þannig nú skal bætt úr því og kellan meira segja farin að taka járn eftir áratugablóðleysi haha...

Ji hvað það verður mikið fjör á bænum og framkvæmdagleði í röðun skrautmuna og dúllerís þegar þetta kikkar allt inn. Svo er líka svo ofsalega gaman að hafa svona afsökun til taks hvenær sem er - æi ég nenni ekki, get ekki, vil ekki, bara seinna...þetta er sko B12 að kenna, verður mjólkað grimmilega;)

Markmið í hreyfingu á árinu eru nokkur m.a. fleiri fjallgöngur í sumar sem frúin prófaði sl. sumar og hafði gaman af, meiri útihlaup eða "labbiskokk" með voffa á morgnana fyrir vinnu þar sem hægt er að leggjast ofan í ána við Grænafellið og fá sér vatnssopa alveg alein í heiminum ( ok meira svona yfir sumartímann), lyfta, lyfta, lyfta...stelpur bannað að vera hræddar við svoleiðis og bara vonandi eins mikið og hægt er;)

Jólaskrautið er amk. komið ofan í kassa, svo þarf bara koma kössunum niður og allt orðið aðeins hreinna og einfaldara...myndir koma síðar.

Bless í bili - knús frá "íþróttabollunni" :)

No comments:

Post a Comment

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.