Monday, January 28, 2013

I would like to thank the Academy...;)

Vá vá...púkasíðan has gone global, eða svona næstum því;)

Sendi inn póst á síðuna hennar Soffíu Skreytum hús þar sem hún var með hvatningarátak að sýna frá framkvæmdum. Ákvað því að skella inn myndum af eldhúsinu í Southfork og ganginum sem bóndinn græjaði og fallegu orðin og "kommentin" sem fylgdu...fer bara hjá mér, ótrúlega skemmtilegt. Held að undirrituð hafi mögulega eignast nýja "bloggvini" og þá fleiri sem kíkja hér við víví..:) Þannig að nú er pressa!

Mun nú aldeilis gera dauðaleit að myndavélinni. Ef leitinni verður aflýst þá er einhvers staðar önnur myndavél til þess að bæta við í myndasafnið.

Svo langar frúna alveg ofsalega til þess að gera þessa síðu aðeins meira smart, kann t.d. ekki að gera svona haus eins og sumir sérfræðingar eru með og margt fleira - áhugasamir mega endilega senda mér póst á sigrtho@hotmail.com eða skrifa hér inn. Er með eindæmum tæknivitlaus og það geta kunnugir staðfest og þarf viðkomandi því að hafa einstakt jafnaðargeð;)

Knús frá Austfjarðapúkum.

17 comments:

  1. Mikið er þetta flott og skemmtilegt blogg hjá þér
    Kv Sigga

    ReplyDelete
  2. Kærar þakkir dömur, fyrir innlitið og kvittið:)

    ReplyDelete
    Replies
    1. hvar fékkstu þennan geggjaða hvíta bakka ?? :-)
      ótrúlega flott breyting hjá ykkur :)

      edda

      Delete
  3. HÆ hæ

    Til hamingju með þessar flottu breytingar á eldhúsinu og íbúðinni ykkar....algjörlega geggjað !
    Alveg lífsnauðsynlegt að eiga svona handlaginn mann....ég á nefnileg einn svoleiðis :-)

    Hlakka til að sjá meira
    Kristín Vald

    ReplyDelete
  4. Hæ og til hamigju með þessar flottu breytinar hef nú einhvern tíma "villst" hingað inn en svo gleymt að kíkja aftur :) Klikka ekki aftur á því :) Hvetjandi að sjá svona flottar breytingar :)
    kveðja,
    Halla

    ReplyDelete
  5. Nýja uppáhaldsbloggið mitt ;)
    Kv. Hanna

    ReplyDelete
  6. Kærar þakkir Kristín, Halla og Hanna:)

    ReplyDelete
  7. halló flottar breytingar hjá ykkur :)Mig langar svo að vita hvaða málningu þíð notuðu á hurðarnar á ganginum
    kveðja Valdís logger@simnet.is

    ReplyDelete
  8. Ég er barasta mjög kát að sjá allar þessa yndislegu konur koma og kommenta hérna hjá þér! :)

    Húrra!

    ReplyDelete
  9. vei það er svo gaman að finna nyja skemmtilega bloggara hér heima. Þú ert sko komin í hópinn minn, hlakka til að fylgjast með þér :)

    ReplyDelete
  10. eitt enn...
    mér finst síðan þín reyndar bara mjög smart og fín. En þú getur notað einföld myndaforrit eins og picmonkey eða photoscape til að gera haus. finnur hvortveggja á netinu og er frítt. svo er ekkert mál að leiðbeina þér þá frekar með það :) og þar sem ég er enginn sérfræðingur í þeim málum þá eru það frekar einfaldar leiðbeiningar. http://www.picmonkey.com/

    ReplyDelete
  11. Vá komment frá Dossu og Stínu Sæm...held ég sé búin að ná toppinum núna víví...er háð ykkar síðum og skoða svooo mikið:) Kærar þakkir Stína fyrir þessa punkta, var ekki búin að heyra um þetta áður:)

    ReplyDelete
  12. Edda - hvíti bakkinn er úr Ikea, hann býr stundum í eldhúsinu og stundum inni í stofu:)

    ReplyDelete
  13. Flott síða hjá þér.. Gaman að hafa uppgötvað þessa síðu líka.. Nýtt áhugamál hjá mér þessar síður :-)
    Ása

    ReplyDelete
  14. Skemmtileg síða hjá þér... á eftir að verða reglulegur gestur hjá þér :)
    kv Guðbjörg

    ReplyDelete
  15. Flottar breytingar hjá þér. Eiginlega alveg ótrúlegar. Þar sem engu er hent. Ég á eftir að kíkja betur á bloggið þitt, var svo spennt að sjá það eftir að hafa séð síðuna hennar Dossu. Ég er alveg samála þér í sambandi við að vilja getað sett upp fallega bloggsíðu. Getur ekki einhver af ykkur snillingunum haldið námskeið (Dossa, Stína Sæm), myndi sko borga á svoleiðisnámskeið. Og aftur til hamingju með þetta allt.

    ReplyDelete

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.