Saturday, November 1, 2014
Byrja aftur að blogga?
Byrja aftur að blogga - það er spurning?
Ég hef ekki sett neitt inn á þessa síðu í rúmt ár. Hún var jú upphaflega hugsuð fyrir fjölskyldu og vini sem vildu fylgjast með lífi okkar hér eftir að við fluttum austur. Svo þróaðist bloggið fyrst og fremst að því að fjalla um framkvæmdir á Southfork en það köllum við húsið okkar.
Framkvæmdir hafa verið margar og to do listinn lengist bara ef eitthvað er.
Svo á lífið það til að skella ýmsu fram sem þarf að takast á við og þá verða blogg um fallega eða sniðuga hluti, framkvæmdir eða bara allt og ekkert...hálf tilgangslausar. En kannski er ágætt að hafa svoleiðis hliðarsjálf og verkefni.
Ég ætla hugsa málið - langar óskaplega að komast af stað aftur og nýta mér nýjustu gjöfina mína, dásemdarmyndavél.
Hugs, hugs...hugs....:)
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

Áfram þú!! :)
ReplyDeleteTakk mín kæra...er að plotta comebackið :) :)
Delete