Sunday, November 16, 2014

Það má alveg skreyta baðið

 
Þegar þessi hilla frá Ikea var sett upp á baði fyrir nokkru síðan var ég spurð hvort það ætti virkilega að nota þetta sem skrauthillu! Öhhhh jú en ekki hvað? Reyndar hanga ræktarfötin þarna ef það er pláss en annars var tilgangur hillunnar og notagildi = skraut = meira pláss fyrir kerti = allir happy!
 
Við tókum þetta baðherbergi í gegn við flutning fyrir rúmum 2 árum síðan, án þess þó að fórna upprunulega innréttingunni. Sama viðhorfið hér og í eldhúsinu, málað hvítt, fulningarlistar notaðir til skrauts og svo hönnunar og snilligáfa bóndans. Efri skápar á baðherbergi voru smíði bóndans frá a-z...
 
Var aldrei búin að klára myndbirtingu before and after endanlega þannig þetta kemur í einhverjum bútum enn um sinn.
 
 
 
 
 
 
Það er nefnilega ýmislegt hægt að gera án þess að henda öllu út og kaupa allt nýtt, sérstaklega ef eitt stk. handlaginn bóndalingur er nærri ;)


2 comments:

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.