Sunday, November 23, 2014

Skrapp í borgina


Borgarstúss í nokkra daga en komin heim í fjöllin. Það var aðeins skotist í þessar hefðbundu...Ikea, Rúmfatalagerinn og auðvitað Ilvu til að athuga með fallegar pappastjörnur.


Þær fundust en nú veit ég bara ekkert hvar ég að koma þeim fyrir, þessar
60. cm voru nefnilega svolítið stórar! En það er nú eitthvað pláss í Southfork þannig ég finn út úr þessu.


Kannski bara á gólfinu?

 
En hér er víst lærdómur framundan, frágangur á ritgerðaskilum og svo fleiri "spennandi" skólaverkefni í vikunni. Ekki má auðvitað gleyma vinnunni og þessum týpísku daglegu verkefnum. Þá þarf að hafa sig allan við að detta ekki í skreytingardútl og nethangs, það er bara svo margfalt skemmtilegra ;)
 
Set inn myndir af hillu í ganginum síðar í vikunni.
 
 
 
Þangað til eigið dásamlegan sunnudag elskurnar :)

3 comments:

  1. geggjað..... hvar fékkstu pappastjörnurnar ?

    ReplyDelete
  2. Takk fyrir það Gauja :)
    Fékk þær í Ilvu Korptutorgi, held þær hafi kostar í kringum 700 kr.

    ReplyDelete
  3. ooohhh takk fyrir það..... ég í Ilvu á morgun :-)

    takk fyrir skemmtileg blogg :-=

    ReplyDelete

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.