Jæja já...sko orlofsrestin var tekin í kringum síðustu helgi og úr varð löng fríhelgi í höfuðstaðnum. Þar áður voru gestir og svo er bara svo ofsalega mikið að gera á Office og þá er bara ekkert blogg.
Var samt búin að smella nokkrum myndum en komst ekki af stað að birta þær.
Frúin bara varð, varð, vaaarð að eignast svona stóra, djúsí krukku eins og Dossa í www.skreytumhus.is á. Þar sem hefur verið krónískur skortur á sprittkertum í Krónunni hér í sveitinni þá var fjárfest í tveimur stórum pökkum frá Ikea og krukkan fyllt! Skrautmyndaramminn kemur svo frá Pier:)
Þessir tveir fallegu koníaksbrúnu kertastjakar fundust einnig í Pier, voru til í fleiri litum en þeir passa bara mjög vel inn í alhvíta eldhúsið. Bakkinn undir þeim kom frá Góða Hirðfíflinu eftir hvíta spreyumferð.
Þessi sjaki ( á tvo ) var brúnn og rauður, keyptur fyrir mörgum árum í Rúmfatalagernum. Hann fékk líka sprautun!
Gamli sjónvarpsskápurinn nýtur sín því áfram sem ágætis skrauthilla þarna að ofan þar til annað kemur í staðinn.
Orlofsþynnkan er enn í gangi en hér eystra er ljómandi fínt veður þrátt fyrir vonda veðurspá víða á landinu þessa helgina. Hér er verið að koma sér aftur í rútínu eftir að junior mætti á svæðið eftir sumarútlegðina sína. Vakna í skólann, lærdómur og allt sem þessu fylgir er bara allt í lagi;)
Hér er amk. búið að fjárfesta í Erikum þar sem haustið er tími frúarinnar ( sporðdrekans ) með tilheyrandi litabreytingum, myrkri og kertaljósum:)
Góða helgi





No comments:
Post a Comment
Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.