Saturday, November 15, 2014

Nú byrjar ballið...aftur!

Búin að ákveða mig!!!
Ætla núna að byrja að blogga aftur.

Hvort sem það verði fyrst og fremst í myndum hér innan og utan af Southfork, framkvæmdum, óþarfa dúllerídóti eða öðru myndefni eða alls kyns blaðri kemur í ljós.

Þeir sem þekkja mig vel vita að ýmislegt hefur átt sér stað á lífins leið á stuttum tíma núna að undanförnu. Því er ágætt að hafa eitthvað annað að hugsa um.

Nú er bara að bretta upp ermarnar og nýta vel nýju myndavélina sem bóndinn gaf mér í "ekki afmælisgjöf" þetta árið. Þið sem fylgdust með fyrir 1- 2 árum vissuð að eitt árið týndist nú myndavélin í rétt um ár.

Nú er ég hinsvegar komin með svo fína græju að best að nýta hana vel og jafnvel byrja á því að skella sér á námskeið og læra á alla nýju takkana.

Ef það er einhver nýr sem kíkir hér inn - þá segi ég bara: Vertu hjartanlega velkomin/n :)


2 comments:

  1. Gama að sjá bloggið þitt aftur, fylgdist með fyrra blogginu og það var mjög gaman að sjá hvað þið eruð útsjónasöm og nýtin. Margar sniðugar hugmyndir :) Velkomin til baka ;)
    Sigga Rósa

    ReplyDelete
  2. Gaman að heyra Sigga Rósa...hélt það væri nú enginn að fylgjast með hehe þannig það er frábært ef enginn nennir að lesa nokkrar línur frá mér og skoða myndir...ekki verra ef einhver græðir hugmyndir í leiðinni :)

    ReplyDelete

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.