Saturday, November 29, 2014

Hillugangur

 
Jæja ætlaði að klára að sýna ykkur hilluganginn - eða hilluna á ganginum:)
Þetta auða "innfallna" rými sem sjá má hér að ofan er veggur sem var settur í stað hurðar. Svo var þarna á tímabili lítil kommóða sem gerði ekkert hvorki fyrir augað né nýtingu á plássi.
 
Þá kom upp sú frábæra hugmynd að nýta þetta dauða pláss fyrir einhvers konar hillur. Lausnin var einföld. Bóndinn keypti timbur/spýtur í Byko. Við grunnuðum spýturnar  og máluðum hvítar, sama var gert við litla fulningalista sem voru settir undir sem nokkurs konar stoðir undir hillurnar.


Hér er svo bóndinn að verki í mörgum af verkefnum Southforks.

 
 Ekki flókin framkvæmd eða hönnun.
 

 
Tilgangi náð - enn einn staðurinn til að bæta við skrauti og fegra í kringum sig :)

 
 
Skreytingarstaðan hefur aðeins breyst frá því þessar myndir voru teknar, endalaust hægt að leika sér með svona hillur. Núna fara þær mögulega í einhvern aðventubúning og verður þá nýja fallega myndavélin notuð til að smella af nokkrum hillumyndum.

 
Vona þið eigið góðan laugardag. Hér rignir og rignir og lítið sem minnir á komandi aðventumánuð með öllu sem því tilheyrir. En það er allt í lagi. Kertaljós og nóg af þeim bjarga bara málunum.
 
Takk fyrir innlitið :)

1 comment:

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.