Tuesday, November 18, 2014

Borðplata og yndiskveðjur

Mikið er gaman að sjá hvað margir hafa gefið sér tíma til að kíkja hér inn.Skildi bara ekkert í þessu og var nokkuð viss að talningin á síðuna væri biluð. Er þá frú Soffía "Dossa" www.skreytumhus.is snillingur ekki búin að auglýsa púkasíðuna enn og aftur - takk takk elsku flotta kona:)

Segi bara við ykkur allar og öll - hjartanlega velkomin/n...gangið í bæinn :)


Borðplata, borðplata. Svona eftir að hyggja hefði eflaust sparað töluverðan tíma, pening og aðallega vinnuframlag og umstang að kaupa strax nýja borðplötu, tilbúna beint úr kassanum. En neinei...við gerum ekki svoleiðis! Þessi er líka mun fallegri því það á enginn nákvæmlega eins:)

Við (ok bóndinn) málaði eiturgrænu borðplötuna frá 1975 með svörtu trukkalakki...26 umferðir. Bíðum svo í tæp tvö ár og smíðum þá ofan á hana! Já ok...bóndinn smíðaði.






Svo var hún brúnbæsuð og lökkuð...

 
Svona verður massív borðplata til:)
 
Bless í bili.

7 comments:

  1. Replies
    1. Sömuleiðis elsku þú...ert nú fyrirmyndin að þessu öllu saman :)

      Delete
  2. Mikið er ég glöð að þú sért aftur byrjuð að skrifa, DIY verkefnin ykkar eru frábært :)

    Ps. Liturinn á útidyrahurðinni er geggjaður!

    ReplyDelete
  3. hún er æði en sagðiru 26 umferðir og svo týmiði að breiða bara yfir hana með spýtum.

    ReplyDelete
  4. 26 umferðir er svona passleg ýking;)
    Trukkalakkið fór reyndar ekki sérlega vel með hana og sá fljótt á henni og varð skellótt og erfitt að halda við og leiðinlegt að þrífa.

    ReplyDelete
  5. Algjör snilld :)
    alltaf svo gaman að sjá hvað þið eruð að bralla, snilldarhjón.
    kveðja
    Stína

    ReplyDelete

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.