Saturday, January 19, 2013
Þvottiþvott...
Laugardagslíf - ræktin búin, Krónan og þorrablótsmiðakaup en herlegheitin eru eftir 6 daga! Verkefni dagsins verða þvottur og svo aðeins meiri þvottur, kannast eflaust einhverjar(einhverjir) við það?
Lítið af framkvæmdum innanhúss í gangi en þó meira af framkvæmdaskipulagsvinnu í heilabúi frúarinnar. Ferming í mars og þangað til er víst þorrablót líka, fótboltaferð á Akureyri og ýmislegt fleira.
Það hefur aðeins létt á álögum hússins því þvottavélin er komin í gang aftur enda bara 2 ára gömul. Ekki skrúfur sem stífluðu hana eða þess háttar framkvæmdasmádót heldur hárspennur eða spílur eins og Fáskrúðsfirðingar kalla þær!
Svo eftir nokkra símafundi með tækni-tengdó fékk Junior spjaldtölvuna í gagnið aftur. Álfarnir hafa hins vegar ákveðið að skila ekki þið vitið hverju sem enn er týnd;)
Markmið ársins séstaklega það heilsuvænna eru í fullum gangi enda dugar ekki bara að fá vítamínspíttbombusprautur af og til heldur verður líka að setja minna eitur í kroppinn og meira af hreyfingu. Það er komið af stað aftur og hlakka bara til að komast í betra og betra form enda erum við Junior með markmið fyrir næsta sumar;)
Knús öll og eigið góða helga, þvottafjöll eður ei:)
Friday, January 11, 2013
Föstudagsfjör...
Aftur komin föstudagur, Officevikan búin og helgarfrí framundan. Verkefni helgarinnar eru áframhaldandi frágangur á neðri hæðinni, dóti og kössum og svo aðeins að fara í gegnum allt sem búið er að troða inn í framtíðarskrifstofuherbergið. Miðað við fyrri reynslu verður lítið sem ekkert af þessu gert heldur slökun (leti), sjónvarpsgláp og mögulegt óhollustuát!
Það verður gestur hjá okkur hér í Southfork en besti vinur junior frá Álftanesinu verður hér um helgina og kemur sér vel að herbergi þeirra er niðri, hljóðdempast aðeins og eflaust fjör hjá þeim félögum;)
Allt jólójóló komið ofan í kassa þó fyrr hefði verið og líka allt svona meira clean-cut og einfaldara! Eins og jól og allt dót sem þeim fylgir er yndislegt, er líka dásamlegt að pakka öllu þessu aukadóti niður sem verður eiginlega of mikið þegar allt er yfirstaðið.
Aðeins komið einfaldara yfirbragð á eldhús, ekkert rautt eða grænt. Hvítu gluggarammarnir fá að hanga aðeins áfram, þó þeir séu tómir á meðan vantar gardínur;)
Skipulagspúkinn mætti á svæðið og búin að útbúa fína möppu fyrir Southfork. Mandarínukassi notaður til að geyma "skipulagsstöðina" þar til skrifstofa verður að veruleika. Stöðin er þó geymd upp í hillu inni í búri, líka notuð samt sem áður... en lítur svona út fyrir neðan Family Rules skiltið sem fékk pólitískt hæli í eldhúsinu;)
Sá alveg ofsalega fína mynd á pinterest.com af skipulögðu og fallegu búri. Búrið hér er ekki alveg jafn fallegt en það fékk smá skipulags-make over...work in progress..
Stofan sömuleiðis orðin einfaldari og bakkar ráða áfram ríkjum. Könglar og þess háttar fær að hanga áfram á bökkum amk. í janúar og kannski febrúar líka, svona vetrarþema í gangi;) Glimmerhreindýrin sjást hins vegar ekki aftur í bráð.
Kertaarininn voðalega berassaður án jólajóla en áfram könglar þar sem það er nú einu sinni vetur;)
Get svo bætt við "heilladísamálum" hússins þar sem gleraugu bóndans eru ónýt þeas. umgjörðin brotnaði, junior eyðilagði eitthvað við nýju spjaldtölvununa rétt eftir jól, send suður til afans, kom aftur viðgerð og það fyrsta sem gerist, hann man ekki password og allt lok lok og læs! Já svo í morgun þá hrinti frúin niður plastkassa með ljósaperum í, margar perurnar voru ekki í kassa...kom sér vel að eiga fína handryksugu þennan morguninn!
Nú er amk. kveikt á 5 kertum í Southfork - elsku álfar, er busavígslan ekki að verða búin?
Knús knús frá Austfjarðapúkum og eflaust öðrum verum líka:)
Thursday, January 10, 2013
Eru álög á Southfork?
Jæja - frúin er komin með samsæriskenningu á nettu stigi!
Það er óhappadís tengd Southfork!!!!
Af hverju segir hún það? Jú sjáið til, eftir flutning inn í húsið:
* Ísskápur bilaði einu sinni
* Ísskápur bilaði aftur eftir viðgerð og vatn lak á parketið og er enn bilaður, núverandi skápur er lánsskápur
* Bíll frúarinnar er bilaður
* Þvottavélin fór að láta furðulega fyrir 2 dögum og ákvað að bila í gær
* Myndavélin er horfin, gjörsamlega, gjörsamlega horfin
* Bloggsíða þessi leyfir frúnni ekki að hlaða myndum inn á síðuna, hvað er það!
* Frúin er alltaf þreytt, slöpp og bara þreytt...ok tengist frekar járnskorti og þess háttar en hver veit;)
* Ljósaperan í þvottahúsinu var horfin í morgun því bóndinn þurfti að nota hana, frúin sló út allt rafmagn í morgun þegar hún reyndi að kveikja ljós í bílskúr til að ath. hvað kl. væri orðin, ætlaði að straujaði skyrtu í hálfmyrkvuðu þvottahúsi sem endaði með því að straujárnið brenndi gat eða bara bræddi efnið því stillinginn var ekki rétt! Það er einhverju óhappa að kenna, getur ekki annað verið;)
* Hinar Humor buxur Juniors finnast ekki!
Það eru eflaust einhver fleiri atriði, man þau bara ekki í augnablikinu.
Yndislegu vinnukellurnar á Office sögðu frúnni bara að kveikja á kertum og hugsa fallega til álfanna...það er kannski málið, álfarnir eru að drukkna úr sóti því það er kveikt á kertum öll kvöld í húsinu, all the time og þá vantar súrefni og eru að hefna sín:) Veit samt ekki hvað það segir um vinnukellurnar ef þær búa með álfum og nota kerti til að róa álfagreyin....
Bless í bili...:)

Wednesday, January 9, 2013
Kraftur og heilsa
Bloggslöpp þessa dagana og enn leitandi að helvískri myndavélinni!
Held það verði að fara viðurkennast að hún er svo sannarlega, sannarlega týnd. Ef The lady of the House finnur hana ekki, þá gerir það víst enginn;)
Aðlögun á fullu í vinnu eftir þetta góða jólafrí og að koma mataræðinu í lag eftir jólin...úff..sykur...púff.
Skipulag er eitt af verkefnum ársins 2013 og annað verkefni er heilsan óháð kg-fjölda þó það sé bara bónus heldur heilsa, heilsa, heilsa...gott mataræði, hreyfing og framkvæmdakraftur sem fylgir þá gjarnan í kjölfarið.
B12 vítamínsprautur (fyrir þau sem ekki vita þá þjáist frúin af "háalvarlegum, svaðalega miklum" skorti á þessu lífsnauðsynlega vítamíni!) Ok þessi alvarlegi-svakalegi partur er kannski svona bara aðeins til að lífga upp á hlutina en miðað við Gúgglið og læknaliðið í familíunni þá er ekki gott að mælast með svona lág gildi...þannig nú skal bætt úr því og kellan meira segja farin að taka járn eftir áratugablóðleysi haha...
Ji hvað það verður mikið fjör á bænum og framkvæmdagleði í röðun skrautmuna og dúllerís þegar þetta kikkar allt inn. Svo er líka svo ofsalega gaman að hafa svona afsökun til taks hvenær sem er - æi ég nenni ekki, get ekki, vil ekki, bara seinna...þetta er sko B12 að kenna, verður mjólkað grimmilega;)
Markmið í hreyfingu á árinu eru nokkur m.a. fleiri fjallgöngur í sumar sem frúin prófaði sl. sumar og hafði gaman af, meiri útihlaup eða "labbiskokk" með voffa á morgnana fyrir vinnu þar sem hægt er að leggjast ofan í ána við Grænafellið og fá sér vatnssopa alveg alein í heiminum ( ok meira svona yfir sumartímann), lyfta, lyfta, lyfta...stelpur bannað að vera hræddar við svoleiðis og bara vonandi eins mikið og hægt er;)
Jólaskrautið er amk. komið ofan í kassa, svo þarf bara koma kössunum niður og allt orðið aðeins hreinna og einfaldara...myndir koma síðar.
Bless í bili - knús frá "íþróttabollunni" :)

Thursday, January 3, 2013
Skipulögð vinnubrögð
Nýtt ár, ný verkefni og eflaust mörg áframhaldandi og endalaust viðvarandi verkefni (hóst.. þvottur og heimilisstörf)..er þá ekki best að halda svolítið utan um málin og koma skipulaginu í lag?
Datt ofan í www.pinterest.com enn og aftur og rambaði þar svo inn á fullt af alveg svaðalega amerískum húsmæðra/útivinnandi/kvenna/allskonar síðum. Eflaust rosalega gamaldags að fíla svona síður en frúin er svona listamanneskja, með alls konar to do lista og dagbækur ofan í öllum skúffum og rafrænt líka. Þarf stundum lista yfir listana og langar alveg í aðeins meira skipulag og því ekki að hafa það kannski svolítið fallegt líka bara í leiðinni;)
Datt svo inn í gúgglarann og skoðaði ýmislegt um skipulag heimilis og þá búmm...home family planner...oh mæ svo amerískt;)

Tiltölulega einfalt að útbúa eina svona fjölskyldu-heimilis-skipulagsmöppu. Skipta henni niður í kafla t.d. um fjármál, matseðil/innkaup, þrif, skipulag og bara það sem hentar. Óteljandi síður til þar sem hægt er að nálgast form og "eyðublöð" fríkeypis til prentunar og svo bara búa til sérlega dúllulega möppu nú eða ljóta, ef það hentar betur.
og auðvitað www.pinterest.com :)
Búin að græja svona möppu fyrir Southfork, meira segja skrifa inn í hana og spurning hvort það virki eitthvað betur við heimilisrekstur, leyfi ykkur að fylgjast með;)
ps - hefur einhver séð myndavélina, bara spurja????;)
Bless í bili.
Subscribe to:
Posts (Atom)