Thursday, December 31, 2015

Við áramót

Það er komið að því. Síðasti dagur ársins 2015 er mættur á svæðið hvort sem við vorum tilbúin að taka á móti honum eða ekki, "búin" að öllu og hakað við í öll box markmiðasetningar ársins.

Eftir síðasta ár sem var það erfiðasta sem hefur dunið á mér og mínu fólki þá breyttist aðeins lífsviðhorfið og sýnin á daglegt stúss. Það skiptir nefnilega engu máli hver markmið eða væntingar ársins sem var að líða voru, bara svo lengi sem þau þjónuðu einhverjum tilgangi - varð lífið ykkar betra, urðuð þið hamingjusamari, gátuð þið fyrirgefið það sem þurfti að fyrirgefa, náðuð þið að eyða tíma með fólkinu ykkar og umframt allt njóta líðandi stundar og skapa minningar?

Þetta er ekki væmni við áramót að skrifast og tala hér heldur sannleikur sem ég lærði á erfiða mátann. Að taka aldrei neinu sem sjálfsögðum hlut því dag einn getur allt sem þið þekktuð verið breytt að eilífu.

Staldrið því aðeins við kæru vinir og hugið að þessu. Önnur tækifæri koma stundum ekki aftur sama hversu heitt við óskum þess.

Þegar ég horfi tilbaka á árið 2015 þá kemur þakklæti upp í hugann. Orð sem ég lærði að meta upp á nýtt. Það er erfitt að vera þakklát eftir sáran ástvinamissi en ég get ekki annað ef ég horfi yfir árið. Ég reyndi einnig að læra að sleppa tökunum. Sleppa því sem er hamlandi og þjónar ekki tilgangi og hvað þá að reyna sleppa því að stjórna öllu! Það er langtímamarkmið, annað er óraunhæft ;)

Ég fór til Bali í dásemdarævintýraferð í maí sl. sem ég hef áður skrifað um og hægt að skoða myndir. Enda eru ferðalög eitt helsta áhugamálið fyrir utan að vinna í blessaða Southfork okkar og gera það betra og betra.


 
 
Við fórum líka til Japans öll litla fjölskyldan og heimsóttum yndislega bróður minn og mágkonu þar.



 
Einkasonurinn útskrifaðist úr 10. bekk grunnskólans á Reyðarfirði og hóf nám vði Fjölbrautarskólann í Garðabæ og fluttist því á "heimavist" suður á Álftanesið til ömmu sinnar og afa. Það var erfitt en drengurinn kláraði fyrstu önnina með stæl og heldur áfram að blómstra sem fótboltastrákur í borginni og kemur reglulega til okkar og við til hans.
 


Það var haldið áfram að framkvæma í Southfork og eitt af því sem þarf að fjalla um á nýju ári er m.a. uppfærsla á litla og stóra baði, umbreyting drasl skrifstofu í sjónvarpsherbergi, græjun neðri hæðar íbúðar og margt fleira.

 
Hluti af því að búa í "sveitinni" og vera úr borginni eru miklar og reglulegar ferðir í vélum Flugfélags Íslands. Ferðirnir eru orðnar svo óskaplega margar þau 7,5 ár sem við höfum búið hér að undirrituð kann allt sem flugfreyjurnar segja utanbókar og gæti jafnvel stýrt einu svona kvikindi við tækifæri...eða kannski ekki :)
 
Það var líka flakkað innanlands, frúin kláraði síðustu lotuna í diplómanámi við Háskóla Íslands bæði í barnaverndarnámi og næstum því kláraði í opinberri stjórnsýslu og margt margt fleira.
 
 
Það hefur snjóað úti eftir vatnsveður liðinna daga og borðið fyrir kvöldið er klárt.
 
 
 


 
 
 
Mikið sem er skemmtilegt að taka myndir bæði hér heima og á flakki. Er enn að læra á vélina mína góðu og þarf að efla mig frekar á þeim vettvangi.
 
En elsku þið. Við Austfjarðapúkar óskum ykkur gleðilegs árs og vonum að árið 2016 færi ykkur alla þá gleði, hamingju, framkvæmdaklikkun og allt það hversdagslega inn á milli sem kallast líf.
 
 
Framundan er óskrifað blað, 365 síður í nýrri bók ársins 2016 sem telur tólf kafla. Eitt er víst að í fimmta kafla bætist ný söguhetja á svið okkar Austfjarðapúka. Hún er stelpa og við getum ekki beðið eftir að hitta hana í byrjun maí næsta árs.
 
 
Áramótaknús :)

2 comments:

  1. Gleðilegt ár og takk fyrir blogginn

    til hamingju með væntanlegan fjölskyldumeðlim, vonandi fáum við að fylgjast með þegar að þú gerir kósý fyrir dömuna ykkar.

    Áramótakveða
    Kristín S

    ReplyDelete
  2. Takk fyrir kæra Kristín og sömuleiðis gleðilegt árið til þín :) Undirbúningur fyrir bleika herbergið verður einmitt á dagskrá næsta árs..bloggknús :)

    ReplyDelete

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.