Friday, January 1, 2016

Nú er það hafið

 
Nýja árið 2016 er mætt á svæðið. Ég tek því fagnandi og í fyrsta sinn í tæp tvö ár er einlæg gleði yfir nýju ári. Þetta nýja ár felur í sér nýtt upphaf, nýja von og ekki síst nýtt líf.
 

 
Ég vona þið gefið ykkur tíma til að setjast niður í einrúmi, með pappír og penna eða eitthvað tæknilegra ef það hentar stílnum betur og hugleiðið hvað koma skal. Ég er ein af þessum sem er afskaplega hrifin af listum og gerði á tímabili lista yfir alla listana mína! Það hefur sem betur fer lagast og nú mætti ég vera duglegri við að halda mig við to do listann í stað þess að gera marga og klára ekki. Mér finnst þó gaman að velta því sem framundan er aðeins fyrir mér og skrifa það niður. Einhver sagði einhvern tímann og margir hafa hermt eftir að óskrifaðir draumar séu ekki markmið heldur bara draumar...hljómar skynsamlega. Ég þarf að skrifa hlutina niður, alltaf þurft og mun alltaf gera.
Með penna.
 
 
En munið þetta. Nýja árið gefur ykkur annað tækifæri. Það er ekki sjálfgefið að fá annað ár. Nýtið það skynsamlega með passlegum skammti af vitleysu, annars væri lífið svo óskaplega leiðinlegt.
 
 
To do listinn fyrir Southfork er ansi langur, virðist oft styttast en svo bætist bara annað við en þannig virka hlutirnir þegar DIY og heimilisbreytingar eru gerðar af þeim sem búa á heimilinu en ekki bara aðkeyptum sérfræðingum þó það sé auðvitað nauðsynlegt stundum.
 
 
Næst á dagskrá í húsinu....ohhh svo margt. Þið verðið bara vera dugleg áfram að fylgjast með :)
 
 
Takk fyrir innlitið og gleðilegan nýjan nýársdag :)

No comments:

Post a Comment

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.