Saturday, December 12, 2015

Hugum að því sem koma skal og því sem er liðið



Þessi póstur snýst ekki um heimili, framkvæmdir eða kertastjaka. Hann er stuttur en snýst um að gefa sér tíma til að líta yfir farinn veg og velta fyrir sér því góða og slæma sem gerðist árið 2015. Áttir þú uppáhaldsdag, uppáhaldsminningu frá árinu? Hvað var erfiðast? Hverju lærðir þú að sleppa? Hvað ertu sátt/astur með? Hvað er framundan á árinu 2016 bæði það sem þú veist að nokkuð öruggt og það sem er óskrifað blað?

Hún "Súsanna" er bresk dama sem býr í London og heldur úti síðunni www.susannahconway.com. Ár hvert síðustu sjö ár hefur hún gefið út vinnubók sem kostar ekkert að ná sér í nema að komast í prentara. Þessi vinnubók kom til mín í ársbyrjun 2015. Ég gaf mér tíma og settist niður og fór yfir árið 2014 sem var eitt það erfiðasta sem hefur skollið á minni fjölskyldu og breytti lífinu að eilífu. Ég notaði þessa bók. Skrifaði ekki í hana allt í fyrsta kasti heldur gerði það smátt og smátt. Sumt gat ég klárað, en annað ekki.

Elsku Púkavinir - hvet ykkur til að kíkja á síðuna hennar og prenta út vinnubókina fyrir engan nema ykkur sjálf. Svo er líka hægt að lita nokkrar myndir eða "Mandölur" eins og svona mynsturhringir kallast, hverjum finnst ekki gaman að því að lita? ;)

 
Knús inn í helgina :)

No comments:

Post a Comment

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.