Myndir eru ágætis leið til að skjalfesta það sem þegar er vitað...það vantar allt jólaskraut í eldhúsið! Andinn hefur bara ekki verið yfir vötnum enda búið að færa og breyta og koma nýju fyrir og öðru út í Southfork eins og gerist hér oft. Þá fer allt á hvolf og jólaskreytingar verða eitthvað minimalískar...en reyni kannski/vonandi að bæta úr því um komandi helgi...eða nei þá þarf að klára ritgerð ;)
Þetta er nú afskaplega ójólalegt eldhús eins og stendur. Önnur jólin núna þar sem engilinn minn vantar. En jólaskreytiandinn kemur kannski i stærri skömmtum þegar líður á mánuðinn...kemur í ljós.
Knús á ykkur þangað til næst - skellti í pönnukökur í vonda veðrinu í vikunni sem var þó ekki vont á þessu svæði að neinu ráði. En allar afsakanir vel þegnar fyrir bakkelsi í kvöldmat;)
No comments:
Post a Comment
Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.