Letin og rólegheitin voru því mikil og myndasmiðurinn "moi" tók bara ekkert rosalega margar myndir hér innanhúss af jólum en það var þó eitthvað.
Einfalt borðið og lítill vetrarskógur með seríum.
Þessar stærri kertakrúsir komu úr Rúmfó og held ég gæti alveg fjárfest í fleirum.
Zelda var slök eins og aðrir á heimilinu en það breytist eflaust þegar sprengjurnar byrja á morgun. Þá fer allt það litla hugrekki sem hún geymir í sínu hjarta.
Einkasonurinn var sérlegur aðstoðarkokkur. Hér var borðað seint því bóndinn var að vinna til átta um kvöldið og því ekkert stress á bænum.
Fastur liður að gæða sér á afgangs hamborgarhrygg á jóladag og umbreyta í nokkurs konar brunch.
Svo var hefðbundnari brunch á 2. í jólum...markmiðið var s.s. að borða mikið og meira og vera í rólegheitum og það gekk vel eftir, sérstaklega parturinn með að borða.
Á jóladag kom betra veður en á aðfangadaginn og þá skrapp undirrituð út með Zeldu í stutta göngu. Það var fallegt og stillt veður og rjúpur flugu um allt í kring eflaust fegnar því að hafa sloppið við það hlutskipti að enda ævina sem aðalréttar á aðfangadagskvöld á einhverjum heimilum ;)
Vonandi hafið þið átt góð og friðsæl jól sama hvar þið voruð stödd. Á morgun er síðasti dagur ársins og mikil læti voru hér í veðrinu í nótt og hefur verið sl.daga. Mikið vatnsveður og tjón í kring en Southfork slapp við skemmdir en afskapleg læti voru í veðrinu í alla nótt.
Takk fyrir innlitið kæru púkavinir :)





Svo gaman að skoða myndirnar þínar Sigrún mín. Mikið var jóló og fallegt hjá ykkur á jólunum, knús og nýárskveðjur úr nýja húsinu í Dalhúsum, Lilja :)
ReplyDelete