Sunday, December 28, 2014

Styttist í endann

Miðað við mína talningu eru þrír dagar eftir af þessu ári, fjórir ef dagurinn í dag er talinn með.


Í sumar var ákveðið að setja Southfork ( vinnuheitið á húsinu okkar ef þú ert að kíkja hér inn í fyrsta skipti ) í smá makeover að utanverðu. Það var málað og málað og gert eitthvað annað og málað og er enn i vinnslu...Jafnvel spurning svona áður en árið líður að setja einn póst um Southfork fegrunaraðgerðir að sumri til, hvernig hljómar það?


Já ætli púkafrúin skelli ekki bara í einn Southfork"sumar" póst á morgun!


Það er víst vetur og jólin enn í gangi skv. okkar íslenska dagatali. Veit ekki um ykkur en á nýársdag þá vil ég helst pakka öllu jólaskrauti niður, hreinsa til og fækka aðeins glingurdóti amk. um nokkur prósentustig.


Mætti kalla myndina hér af ofan nýja tegund af selfie:)



Já það er víst vetur, hvítt og kalt en fallegt er það. Við skulum því hverfa aftur til hlýrri daga sem voru hér í sumar og sjá hvað var brallað flesta daga og langt fram á kvöld þar til haustið skall á. Skoðum það á morgun.

Takk fyrir innlitið elsku Púkavinir :)

3 comments:

  1. mikið er ég glöð að þú ákvaðst að halda áfram að blogga. Var nýbúin að finna bloggið þitt þegar að þú skaust þér í pásuna - póstarnir núna gerðu hana alveg þess virði.
    Virkilega fallegt heimili og greinilegt að heimilisfólki er umhugað um að hafa fallegt og fínt i kringum sig (nema þar sem hurðum er lokað kannski ;) )
    ótrúlegur kraftur í ykkur í breytingum og gaman að fá að fylgjast með þeim og fá flottar og góðar hugmyndir

    kveðja
    Kristín S

    ReplyDelete
  2. Var að rekast á bloggið þitt og finnst það æði. Er nýflutt í næsta fjörð við þig og gaman að sjá hvað þú/þið eruð að gera fallegt í kringum ykkur.
    Takk fyrir mig
    Kv

    ReplyDelete
  3. Takk fyrir það og gaman að heyra. Ýmislegt hægt að gera þó ekki sé allt keypt splunkunýtt. Hugmyndaflug og handlaginn húsbóndi hjálpar svo til ;) - velkomin á Austfirðina :)

    ReplyDelete

Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.