Við eigum flest öll eitthvað rými á okkar heimilum sem umbreytist fljótt í eina stóra draslskúffu - kannist þið ekki örugglega við það? Plís nikkið kolli mér til samlætis svo ég verði nú ekki alveg út úr kú:)
Í stóru húsi eins og Southfork hafa reyndar öll rýmin suma daga verið eins og eftir árás. Hér hefur svo mikið verið stússað að rúmum tveimur árum síðar má enn finna leifar af sagi ofan á listum hér og þar.
Jábbs þannig er nefnilega raunveruleikinn. Ekkert er fullkomið og það er lítið mál að smella af myndum og raða upp fallegum hlutum en skilja ákveðin rými eftir.
Þannig hér kemur smá opinberun!
Verkefni "HEIMA OFFICE IN THE MAKING AÐ VERÐA HUGGULEGRI" er að hefjast! Verklok = óstaðfest.
Fyrir utan undirbúning jólanna og því sem svoleiðis stússi fylgir er Púkafrúin búin að vera í orlofi og verður til 5. janúar. Aldrei nokkurn tímann tekið frí alveg yfir þessa daga, alltaf verið eitthvað tengd vinnu. Orlofið hefur verið notað í kærkomið hvíldarfrí eftir mjög erfitt ár. Planið var samt og er enn að nota þessa daga í ákveðin verkefni hér innanhúss. Verkefni sem sitja á hakanum dagsdaglega eftir langa vinnudaga og hið týpíska félagslega dagatal.
Þannig hér er maður mættur berskjaldaður og í raunveruleikanum...drasl, drasl, drasl og aftttur drasl. Var verra en vildi ekki missa lesendahópinn endanlega ;)
Heimaskrifstofan er eins og flest annað hér á bæ, heimasmíðuð og hönnuð af bóndanum og auðvitað ávallt inspíraður af frúnni! Herbergið hefur hinsvegar ekki verið nýtt sérlega mikið. Þegar tölvur eru orðnar flestar snúrulausur, fartölvur, spjaldtölvur, snjallsímar og hvaðeina þá er oftast sitið í sófanum fyrir framan imbakassann eða í eldhúsinu en ekki í tilætluðu heimaskrifstofurými! Hefur mögulega eitthvað að segja ef rýmið er ekki alveg að gera sig.
Þessi forláta kista gerði lítið annað en að taka of mikið pláss en gott að geyma dót í henni. Færðum kistuna niður áðan.
Þessi bókahilla virðist alltaf standa eins og illa gerður hlutur í þessu rými, of stór, of eitthvað, er bara ekki að virka fyrir mig.
Þannig nú þarf að brainstorma, hugsa, skipuleggja, fá innblástur og framkvæma. Það að geta verið með heimaskrifstofu er algjör draumur í dós, það að láta skrifstofuna lúkka eins og draum virðist ganga hægt.
Þessi mynd er tekin af síðunni http://www.iheartorganizing.blogspot.com alveg brilljant hugmyndir og allt svo fallegt og fínt og hreint og bjart!
Svo má auðvitað ekki gleyma dásamlega heimaskrifstofunni hennar Dossu http://www.skreytumhus.is/?p=2578 sem er svo falleg...sjáið bara!
Allar hugmyndir vel þegnar. Þangað til ligg ég á öðrum bloggsíðum og reyni fá innblástur. Svo væri nú ekki verra að hafa Mister Ikea, Rúmfó eða þann Góða aðeins nær. Fyrir okkur landsbyggðartútturnar þá höfum við þau "forréttindi" að borga flutningskostnað sem er oftast dýrari en sjálf varan sem við kaupum...en þá er bara halda áfram að ferja hin ýmsu hluti á milli í borgarferðunum.
Þangað til næst - þúsund, þúsund þakkir fyrir innlitið og falleg komment, svo gaman að sjá að einhver hafi áhuga á að kíkja hér og fylgjast með okkur.
Knús til ykkar elsku Púkavinir :)


Æ hvað ég er fegin að sjá svona skipulagða óreiðu annarsstaðar en hjá mér :D Hlakka til að sjá hvað kemur út úr þessu, örugglega einhver dásemd :)
ReplyDeleteNjóttu jólafrísins! :)
Kv. Margrét Helga
Úff þú ert sko ekki ein um svona drasl herbergi! Er einmitt með eitt sem hefur verið notað sem gestaherbergi/ bókaherbergi en það einmitt à dagskrà að gera þar vinnuaðstöðu! Hlakka til að sjà útkomuna hjà þér :)
ReplyDeleteKveðja úr nàgrannafirði,
Halla