Við keyptum stafafuru. Held ég sé bara orðin svolítið skotin í þessari tegund. Aldrei verið með annað en hinn klassíska Norðmannsþin.
Af hverju er búið að skella trénu í selló spyr einhver? Jú sjáið til. Eins og það eru margir kostir við að búa stundum á landsbyggðinni þá er ýmistlegt annað sem maður upplifir sjaldan í höfuðborginni. Hér stendur valið um að kaupa tré á tveimur stöðum. Á öðrum staðnum verður þú að kaupa tréð í netinu, óséð! Það gekk auðvitða ekki. Þá fórum við á hinn staðinn, fundum þetta ljómandi tré, mátti sko taka það úr netinu en pökkunargræjan til að "neta" það aftur virkaði ekki...nú þá bara plastar maður kvikindið! Made in Sveitin you think :)
Þarna glittir í nýja jólatrésfótinn sem lak og þurfti að leysa málið með þeim gamla og auðvitað skila nýja fætinum.
Gamli hlussufóturinn komin undir og allur vatnsleki úr sögunni. Svo var ákveðið að fyrst ný tegund af tréi var komin í hús að hafa eingöngu hvít ljós en ekki marglit. Keyptum því fallegar seríur í Húsasmiðjunni (gleymdi taka mynd af kassanum ). Þetta er sería eins og var alltaf á mínu heimili í den, ljósin eins og kerti.
Fyrsta skrautið sem fór á tréð er þetta snjókorn sem ég gaf Sigurveigu minni og hún geymdi við snyrtiborð í svefnherberginu sínu, núna passa ég upp á það.
Mæli með þessum kössum á 500 kr. í Húsasmiðjunni. Nældi mér í nokkra.
Allt að smella hjá okkur...
Nei sko þarna er kerlingin :)
Hérna er svo passlega stóra - þétta Stafafuran í ár. Er bara nokkuð með sátt með útkomuna. Á næsta ári verða kannski slaufur og meira glimmer og dúllerí en við erum sátt.
Er þetta ekki barasta ok?
Vona þið eigið dásamlegt Þorláksmessukvöld hvar sem þið eruð stödd í veröldinni. Við erum í rólegheitum hér á Reyðarfirði. Bóndinn á líklega sinni síðustu næturvakt í bili og við einkasonurinn dúllumst hér og ekki til neitt jólastress á þessum bænum. Vildi þó hafa fjölskylduna hérna hjá okkur eða við fyrir sunnan ein plön breyttust en aldrei að vita hvað verður um áramót.
Knús kæru vinir og takk fyrir innlitið :)
Yndislega fallegt hjá ykkur - tréð, ljósin og bara allt saman!
ReplyDeleteGleðilega hátíð <3
Sammála síðasta ræðumanni :) Gleðileg jól!!
ReplyDelete