Síðasti dagur ársins 2014. Ár sem hefur verið mér og minni fjölskyldu sérstaklega erfitt því við misstum svo mikið, of fljótt.
Framundan er óskrifuð bók. Fyrsta blaðsíðan byrjar á morgun nýársdag. Mikið vona ég að bókin ykkar og saga verði eins og þið viljið hafa hana. Þið hafið ekki stjórn á öllu. Reyndar höfum við afskaplega litla stjórn þegar á reynir en við stjórnum því hvernig við glímum við söguna okkar og höfum mikið um innihald kaflanna að segja.
Hér rétt að lokum nokkrar myndir af áramótiborði litlu fjölskyldunnar.
Austfjarðapúkar senda ykkur öllum allt heimsins ljós og birtu á nýju ári. Takk fyrir innlitið kæru Púkavinir og fallegu kommentin. Dásamlegt að vita til þess að einhver þarna úti hafi gaman af því að fylgjast með okkur hér í Southfork. Það gefur kraft í að halda áfram, framkvæma, skapa, breyta og birta :)

No comments:
Post a Comment
Endilega kvittaðu í gestabókina:) Veldu Anonymous ef þú ert ekki með Google reikning.